Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 481
UM HAIjLÆRI á vestmannaeyjum.
473
83. Bréf dómsmálastjórnarinnar til stiptamtmannsins
yfir íslandi, um ráðstafanir til að afstýra hallæri í
Vestmannaeyjum.
Með bréfi, dagsettu 11. f. m., liafíð þér, herra stiptamt-
maður, sent hingað með áliti hlutaðeiganda sýslumanns bænarskrá,
þar sem fátækrastjórnin á Vestmannaeyjum sækir um lán uppá
60 tunnur af korni lianda hreppnum, sem borgist aptur með 100
rd. á ári hverju, til þess áð afstýra þar hallæri á vetri komanda;
hafið þér jafnframt leidt athygli stjórnarráðsins að því, að hjálp
sú af hálfu hins opinbera, sem liinir efnalitlu Vestmannaeyingar
efalaust væri þurfandi, mundi koma þeim bezt í hag, ef veitt
yrði fé á líkan hátt og gjört liefír verið á reikningsárunum
1870— 71 og 1871—72, til þess að girða og rækta tún á téðum
eyjum, og stungið uppá, að veita megi á yfirstandanda reiknings-
ári 500 rd. til þessa, enda þótt fjárveitingin fyrir reikningsárið
1871— 72 yrði ekki notuð. Með því þessi ráðstöfun samt sem
áður varla mnn nægja til þess að afstýra hættu þeirri fyrir
hungursneyð, sem yfir vofir, hafið þér ennfremur farið þess á
leit, að veitt verði Vestmannaeyjahrepp lán af hjálparsjóði lands-
sjóðsins uppá allt að 400 rd., með því skilyrði að greiddir verði
4 af hundraði í vöxtu á ári, og lánið verði borgað aptur á
þremur árum, þeim sem í hönd fara, að minnsta kosti '/a á
ári hverju.
Útaf þessu gefst yður til vitundar, yður til leiðbeiningar og til
þess þér birtið það og gjörið þær ráðstafanir, sem með þarf, að
stjórnarráðið leyfir, að verja megi allt að cOOrd. af því fé, sem
tiltekið er í áætlun um tekjur og útgjöld Islands á reikningsárinu
1872— 73, 9. grein, til þess að girða og rækta tún á Vestmanna-
eyjum með hinum sömu kjörum og áður, og að veita megi Vest-
mannaeyjahrepp lán uppá allt að 400 rd. af því fé, sem tiltekið
er í 10. grein áætlunarinnar, með þeim skilmálum, sem þér
hafið til greint. Jafnframt og vér getum þess, að vér höfum
í dag boðið landfógeta, að borga yður þessar tvennar fjárupp-
hæðir, þegar er þér gjörið tilkall til þeirra, væutum vér, að fá
1872.
H. ágúst.