Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 482
474
UM HALIiÆRI A VESTMANNAEYJUM.
1872.
14. ágúst.
14. ágúst.
skýrslu frá yður um þær ráðstafanir, sem gjörðar verða í þessu
tilliti.
84. Bréf dómsmálastjórnarinnar til stiptamtmannsins
yfir íslaudi, um leiðarvísi handa póstjþjónum á
íslandi.
Samkvæmt tilskipun um póstmál á íslandi, 26. febr. þ. á.,
17. grein, felur dómsmálastjórnin yður, herra stiptamtmaður, á
hendur, að semja og gefa út í tækan tíma leiðarvísa fyrir póst-
afgreiðslumenn og brefhirðingarmenn á íslandi eptir því, sem
fyrir er mælt í auglýsing stjórnarráðsins, 3. maí þ. á., og búa
til og birta almenningi þær ákvarðanir, sem með þarf, um komu-
tíma og burtfarartíma allra pósta á íslandi, fyrir árið 1873 og
eptirleiðis fyrir hvert ár.
Með því póstmeistarinn í Reykjavík, sem skipaður var 29.
f. m., fyrst tekur við embætti sínu 1. apríl n. á., en hin nýja
tilhögun á póstmálum, sem sett er með tilskipun 26. febr. þ. á.,
kemst í gang um sama leyti, verður eigi farið eptir þeim á-
kvörðunum óbreyttum, sem auglýsing um póstmál á íslandi, 3.
maí þ. á., 3., 4. og 5. grein, samanbr. 1. grein, hefir inni að
halda um skipun póstafgreiðslumanna, brefhirðiugarmanna og
pósta, í fyrsta skipti að þessir sýslunarmenn verða skipaðir, og
hefir stjórnarráðið ákveðið, að stiptamtmaður skuli í fyrsta skipti
ráða póstafgreiðslumenn eptir uppástungu hlutaðeiganda amt-
manns, en bréfhirðingarmenn og pósta skulu hlutaðeigandi amt-
menn ráða, ef póstleiðin að eins nær til eins amts, en stiptamt-
maður, ef hún nær til fleiri amta, samkvæmt áliti þeirra amt-
manna, sem hlut eiga að máli.
Stjórnarráðið mælist því til, að þér, herra stiptamtmaður,
samkvæmt þessu, og að öðru leyti samkvæmt fyrnefndri aug-
lýsing dómsmálastjórnarinnar, sjáið um í tækan tíma, að ráðnir
verði svo margir póstþjónar á íslandi, sem fyrir er mælt í aug-