Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Side 507
UM BRAUÐAVEITINGAE.
499
Eeykjavík í sumar, við stiptsyfirvöldin um, að send yrði bænar-
skrá til stjórnarráðsins um breytingu á tilsk. 15. desbr. 1865,
2. grein, haflð þér, herra stiptamtmaður, og þ er, háæruverðugi
herra, í bréfi, dagsettu 21. ágústm. þ. á„ stungið uppá, að lagt
verði fyrir næsta alþingi frumvarp til lagaboðs, sem breyti 2. gr.
í téðri tilskipun annaðhvort á þá leið, að þau prestaköll á ís-
landi, sem metin eru fram yfir 1000 rd., að eins verði talin í
1. flokki (aðalbrauð), og veitt af hans hátign konunginum, eða
á þá leið, að það verði ákveðið, að nokkur af hinum stærstu
brauðum á íslandi eptir því mati, sem þá gildir í hvert skipO
svo sem sex, átta eða tíu af þeim prestaköllum, sem hæzt eru
metin, skuli veitt af konungi. Til samlags við þetta hafið þér
álitið æskilegt, að gjörðar yrði við þetta tældfæri ýmsar breyt-
ingar, sem þér nákvæmar hafið útlistað, á því fyrirkomulagi, sem
nú er á veitingu prestakalla á íslandi, og hafið þér, ef stjórnar-
ráðið eigi findi ástæðu til að leitast við að breyta þeim reglum,
sem nú gilda um þetta efni, með lagaboði á þá leið, sem þér
hafi bent til, eða á líkan hátt, að endingu stungið uppá, að það
verði lagt biskupinum á íslandi fyrir, að senda skýrslu um það
með fyrsta pósti, þegar aðalbrauð losnar, svo það verði augiýst,
ef þess þykir við þurfa, í stjórnartíðindunum dönsku (Mini-
sterialtidende), áður en biskup sendir hingað með áliti sínu
bónarbréfin um brauðið, sem til hans eru komin.
Útaf þessu gefst yður til vitundar, að stjórnarráðinu í öllu
falli nú sem stendur finnst eigi vera næg ástæða til, að koma
því til leiðar, að breyting verði gjörð á þeim ákvörðunum, sem
nú eru í gildi um veitingu prestakalla á Islandi, en aptur ámóti
er það samþykkt, að send sé hingað skýrsla með fyrsta pósti,
jafnskjótt og aðalbrauð losnar, og um ieið skýrt frá brauðinu
o. s. frv.
1872.
25. oktbr.