Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 512
504 LEIÐARVÍSIR FYRIR BRÉFHIRÐINQARMENN.
Partur af pundi reiknast sem lieilt pund.
Se verö tiltekið, skal þaraðauki greiða ábyrgðargjald jiað,
sem um er getið nr. 2.
Fyrir tilvísunarbref með böggli er ekkert borgað, en eigi
má það vega yíir 3 kv.
4. pegar sá, er sendir, óskar kvittunar viðtakanda fyrir
sendingunni, en það verður að vera ritað á sendinguna eða til -
vísunarbréfiö, ber fyrir hana að greiða burðargjald, sem fyrir
einfalt bréf.
5. Sé ekki rétt búið um peningabréf, og sá, er sendir,
ekki óskar sjálfur að bæta úr því, borgar hann 3 sk. í peningum,
cr til falla bréfhirðingarmanni, ef hann getur úr bætt, en ella
því pósthúsi, livert póstur skal ganga.
Úm hversu póningaumslög skal laga og hversu peningar
skulu umvafðir, þegar þeir eru lagðir í umslag, skal bréfhirð-
ingarmaður útvega sér nákvæma upplýsing, og sendi hann frá
sér peningabréf, sem ekki er í réttu umslagi, skal hann allsbostar
skyldur til að svara póstafgreiðslunni nefndum 3 sk. til að bæta
úr þessu.
Fyrjr að leggja til lakk, til að forsigla einhverja sendingu,
skal sömuleiðis borga 3 sk.
Fyrir hvern bögul, sem ekki fylgir tilvísunarbréf, eða ekki
er merktur eptir reglunum, borgar sá, er sendir, 3 sk. fyrir hvert
um sig, þegar liann óskar ekki sjálfur úr að bæta. Bæti bréf-
hirðingarmaður úr því, til fellur borgunin honum, en annars því
pósthúsi, hvert póstur skal ganga.
6. Sendingar með þjónustu-frímerkjum álítast sem óborg-
aðar, ef ekki er með farið nákvæmlega eptir auglýsing 3. maí
1872.
7. þessar sendingar má ekki senda, nema alborgaðar:
kvittanir fyrir sendingum, ábyrgðarbréf, sendingar (bréf) til kon-
ungs eða ættar hans og til yfirvaldanna, þegar sá, er sendir,
ekki hefir ritað á þær: „fyrirskipuð skýrsla“, „heimtað álit“ eða
„fyrirskipuð sending“ og nafn sitt undir.
1872.
31. oktbr.