Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 515
LEIÐARVÍSIR FYRIR BRÉFHIRÐINGARMENN. 507
segir í 7. gr. við póstlistann, og telja blöð pau, sem með eru. _ 1872.
Sömuleiðis skal opna tösku þá, er póstur ber á sér, og skal 31. oktbr.
þá afhenda bréf þau, er í henni eru, eða senda þau
áfram, eptir umgetnum reglum. Frímerkin á öllum þeim
sendingum, sem færðar verða á póstlista til annara bréf-
hirðingarstaða, skal áður ónýta, annaðhvort með þar til gjörðum
stimpli, eða með 2 blekstrikum í kross yfir þau. Á þeim bréfum
þar á móti, er ganga skulu til næstu póstafgreiðslu, skal póst-
afgreiðslumaður ónýta frímerkin.
10. grein.
Öll bréf, blöð, peninga- og bögglasendingar, sem eru 150 rd.
virði og lenda eiga í póstumdæmi bréfhirðingarstaðarins, skal
senda bréfhirðingamanni til að skila þeim, ef meðtökumenn ekki
hafa gjört aðra ráðstöfun.
jjegar sending, er meira verði nemur en 150 rd., liggur
hjá póstafgreiðslumanni til afhendingar mót kvittun, skal tilvísun-
ar-bréfið, eða, ef það er ekki til, póst-vísbending frá pósthúsinu
senda á bréfhirðingarstaðinn með fyrsta pósti til að afhendast
meðtökumanni.
11. grein.
Bréfhirðingarmaður er ekki skyldur til að láta bera með-
tökumönnum sendingarnar, en á þó, sem fremst er unnt, fyrir
samkomulag við sambúa og nágranna að reyna til að koma þeim
til skila hið fyrsta. þegar tækifæri býðst, á hann að reyna að
koma því til leiðar, að nábýlin 0g næstliggjandi sóknir taki sig
saman um upp á sameiginlegan roikning að halda sendimenn til
að koma sendingum frá og til bréfhirðingarstaðarins.
Bréfliirðingarmaður skal skýra pósthúsi því, er hann stendur
í sambandi við, frá, til hverra bæja, staða 0. sv. frv. hann geti
komið póstsendingunum.
12- grein.
Fyrir sendingar þær, sem bréfhirðingarmaður skilar meðtöku-
mönnum, skal hann heimta burðargjald það, sem ritað er á bréf
eða tilvísunarbréf í skildingum, og stendur hann pósthúsinu skil