Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 543
DM EÍKISSKDLDABRÉF.
535
og álit frá hinum amtmönnunum á íslandi um málið, jafnframt
og- vér gátum þess, livað örðagt það væri, að gjöra þessar ráð-
stafanir fyrir ísland, nema fela mætti á hendur einhverju yfir-
valdi þar, og þá sérílagi landfógetanum, vald til að rita ríkis-
skuldabréf í viðaukadeild við innskriptarbók fjárhagsstjórnarinn-
ar. í svari sínu lýsti fjárhagsstjórnin því yfir, að húu væri fús
til að veita íslendingum ýms liagræði með tilliti til að rita ríkis-
skuldabréf í innskriptarbók fjárhagsstjórnarinnar og hafa skipti á
þeim, en ekki þóttist liún geta gengið að því, að fela nokkru
yfirvaldi þar í landi á heudur, að rita ríkisskuldabréf í viðauka-
deild við innskriptarbókina, en þareð dómsmálastjórnin fram-
vegis varð að álíta, að nema þaö sé gjört væri eigi æskilegt, að
þær ráðstafanir, sem á seinni tímum hafa gjörðar verið til þess
að koma í lag ríkisskuldunum innanlands, yrði innleiddar á ís-
landi með lögum, liefir ijárhagsstjórnin sleppt þeirri fyrirætlun,
að koma þessu til leiðar. Jafnframt þessu hefir téð stjórnarráð
samt sem áður, til þess menn af sjálfsdáðum yrði fúsari til að
hagnýta þessar ráðstafanir viðvíkjandi ríkisskuldunum, veitt íslend-
ingum ýms hagræði í þessu efni, sem í raun og veru eru hin
sömu, sem hefði orðið samfara því, ef fyrnefnt fyrirkomulag á
ríkisskuldunum hefði oröiö innleidt með lögum og mönnum gjört
að skyldu, að fara eptir því. Fjárhagsstjórnin hefir þannig leyft,
að vextirnir af innskriptarskýrteinum, sem íslendingar kunna að
heimta fyrir ríkisskuldabréf, sem eigi verður sagt upp, verði
borgaðir mönnum við jarðabókarsjóð íslands, ef þeir gefa sig
undir það, sem fyrir mælt er um téð ríkisskuldabréf í auglýsing
fjárhagsstjórnarinuar 20. septbr. 1859, án þess þeir sýni inn-
skriptarskýrteinin, að svo miklu leyti sem þau eru eign opinberra
stofnana eða sjóða (merkt einkunnarstafnum C), eða eru látin
til fyrir skuldabréf, sem sett eru að veði til tryggingar opin-
berum gjaldheimtum (merkt einkunnarstafnum E), en eigi ein-
stakir menn innskriptarskýrteinin (rnerkt einkunnarstöfunum D og
F), verður að leggja þau fram við jarðabókarsjóðinn, til þess ritað
verði á þau, að vextirnir sé borgaðir, nema því að eins, að eitt-
hvert yfirvald hafi vottað, að borgun vaxtanna sé rituð á skýr-
1872.
7. uóvbu.