Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 598
590
UM HEIMTINGU BRENNIVÍNSGJALDS.
1873.
15. marz.
15. marz.
Um 7. Um þetta atriði skal vísað til meðfylgjanda nm-
burðarbrefs, sem í dag er skrifað öllum lögreglustjórum á
íslandi.
Að svo miklu leyti sem kaupmenn hafa æslct eptir því, að
það mætti vera komið undir hverjum einum sjálfum, hvort hanu
borgaði gjald það, sem ákveðið er í tilskipuninni, í Kaupmanna-
liöfn eða á íslandi, gefum ver yður til kynna, að stjórnarráðið
á eigi hægt með að veita slíkt leyfi, þareö það kæmi í bága við
fyrirskipanir í 2. og 10. grein tilskipuuarinnar, enda mundi
það fyrirkomulag miklum örðugleikum bundið.
19. Umburðarbréf dómsmálastjórnarinnar til allra lög-
reglustjóra á íslandi, um heimtingu brennivíns-
gjalds.
Til leiðbeiningar við útreikning gjalds þess, sem með tílsk.
handa íslandi 26. febr. f. á. er lagt á brennivín og aðra áfenga
drykki, skal þess getið, sem hér segir:
1. Á dönskum vöruskrám, sem fylgja þeim vörum, sem
flytjast til íslands, er tilfært mál á víni og áfengum drykkjum,
því þetta er ávallt gjört, þegar átt er við vín á flöskum og aðra
áfenga drykki, en með tilliti til víns á tunnum og öðrum ílátum en
flöskum, sem á hinn bóginn er tiltekið í vilct, er sérstaklega skipað
svo fyrir, að tollstjórnin skuli á vöruskránni handa skipum, sem
afgreiðast til íslandsferðar, breyta viktinni í mál. Að svo miklu leyti
sem málið eigi verður fundið með hinni svo nefndu rúðumæling, og
sé ekki reynsla fyrir einhverju hlutfalli, sem farið verði eptir við
breytingu viktar í mál á einhverri vörutegund, verður breytingin
gjörö eptir hlutfalli, sem byggt er á vikt hinna ýmsu víntegunda
að meöaltölu, og hefir það reynzt svo, að einn viertel eða 8
pottar vegi 15,4 pd.; er því 1 pottur hérumbil jafn 1,9 pd.
Tollgæzluvaldið danska skal hafa gætur á, að allar vörur sem
flytjast til Islands af þeirri tegund, sem hér er umtalsmál, sé