Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 607
DM YFIKRÉTTARHÓSIÐ í REYKJAVÍK.
599
landssjóðnum cr greidt fyrir hönd dómsmálasjóðsins til byggingar 1873-
hegningarhússins, og 16-apríi.
að fe það, sem með þarf til þess að koma fyrir húsakynn-
um handa prestaskólanum, verði borgað af þeirri upphæð, sem
í áætlun um tekjur og útgjöld íslands á reikningsárinu frá 1.
apríl til 31. desbr. 1873, 10- gr., er ætluð til óvissra útgjalda,
sem uppá .kunna að koma, og veitist yður vald til að láta borga
yður fé þetta úr jarðabókarsjóði íslands; samt má það eigi með
nokkru móti fara fram úr þeim 677 rd., sem tilteknir eru í
áætlun yðar um kostnaðinn við þetta, heldur er búizt við, að
hann verði eigi meiri, en 625 rd., eins og þér hafið gjört ráð
fyrir í bréíi yðar.
Jafnframt og vér búumst við að fá skýrslu um ráðstafanir
yðar í þessu tilliti, þegar að því kemur, og reikning með til-
heyrandi skilrikjum yfir kostnaðinn, verðum vér að því leyti, sem
þér að endingu hafið stungið uppá, að landshöfðingja veitist vald
til að fá fimleikakennara Steenberg til þess að vera sendiboði
við landsyfirréttinn og takast á hendur umsjón um húsakynni
prestaskólans, gegn því, að honum sé veittur ókeypis bústaður í
fyrnefndu yfirréttarhúsi og 50 rd. í árlegt kaup, — on af því
skuli 30 rd. greiddir af dómsmálasjóðnum, en hinir 20 rd. af
því fé, sem ætlað er handa prestaskólanum til eldiviðar og Ijósa —
að mælast til þess, áður en nokkuð er veitt árlega úr dómsmála-
sjóðnum, að fá skýrslu yðar um, hvort téður sjóður hafi nokkrar
fastar tekjur nú, eptir að skuldabréf hans samkvæmt boðum
dómsmálastjórnariunar eru afsöluð landssjóðnum, og legorðssektir
eigi framar falla til hans, en því skal við bætt, að mál þetta er
sent kirkju- og kennslustjórninni, að því leyti, sem þetta atriði
einnig snertir hana.
27. Bréf dómsmálastjórnarinnar til Iandshöfðingjans 16. april.
yfir íslandi, um þjónustnfríraerki.
Útaf uppástungu yðar, herra landshöfðingi, í bréfi 22. f. m.