Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 613
UM VERÐLAUN FYRIR MANNBJÖRG.
605
33. Bréf dómsmálastjórnarinnar til landshöfðingjans .
yfir íslandi, um verðlaun fyrir björgun manna ár 15- maí
lífsháska.
Amtmaðurinn, sem þá var yíir vesturumdæminu, hefir sent
hingað útskript af prófi, sem haldið var 8. febrúarm. f. á. við
lögreglurétt Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu um atvik þau, sem
urðu við það, að Magnús bóndi Sigurðsson á Ósi, sem nú er
hreppstjóri, og hásetar hans, þeir Stefán Jðnsson frá Narfeyri,
Ketill Jónsson frá Höfða og Vernharður Björnsson frá Setbergi,
björguðu þremur af fimm mönnum, sem hvolfði undir á Alpta-
firði, og hefir amtmaður stungið uppá, að fyrnefndum mönnum
verði veitt hæfileg verðlaun í peningum.
Útaf þessu gefst yður til vitundar, yður til leiðbeiningar,
og til þess þér birtið það og gjörið ráðstafanir, sem með þarf,
að stjórnarráðið samkvæmt því, sem fram er kornið, hefir veitt
fyrnefndum hreppstjóra til verðlauna 8 rd., og hverjum af háset-
unum 4 rd., og mun fé þetta verða goldið úr jarðabókarsjóðnum,
þegar annaðhvort þér eða amtmaðurinn yfir suður- og vestur-
umdæmi íslands gjörið tilkall til þess, en vér höfum í dag
skrifað landfógeta það, sem með þarf i þessu tilliti.
34. Bréf dómsmálastjórnarinnar tii iandsiiöfðingjans 20. maí
yfir íslandi, um hlnnnindi fyrir sparisjóðinn f
Reykjavfk.
Með bréfi, dagsettu 13. nóvbrm. f. á., hafið þér, herra lands-
höfðingi, sent hingað bænarskrá, þar sem stjórn sparisjóðs nokkurs,
sem stofnaður er í Reykjavík, sækir um, að samþykkt téðs sjóðs
verði staðfest af konungi, 0g að sjóðnum verði veitt ýms öunur
hlunnindi, og hafið þér jafnframt farið þess á leit, að konungs-
staðfesting þessi verði fengin, 0g að lagt verði um leið fyrir
alþingi frumvarp til tilskipunar, er gefi stjórninni vald til að