Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 620
612
KONUNGLKG AUGLÝ8ING TIL ALÞlNGIS.
1873. hann álíti sumar af ákvörðunum laganna óhentugar og óaðgengi-
23. maí. legar fyrir íslendinga, og að þetta einkum eigi sér stað um það,
sem fyrir er mælt í lögunum um uppliæð tillagsins og um það,
að öll skuldaskipti íslands og ríkissjóðsins skuli á enda kljáð með
þeirri tilhögun, sem þar er selt, þá eru þessar ákvarðanir — aö
því einu undan teknu, að grein sú, sem við er átt, eptir til-
mælum, sem komu fram á alþingi, er orðuð á þá leið, að öll
tvímæli um, að tillagið sé statt og stöðugt, eru með því tekin
af — með öllu samhljóða frumvarpi því, sem lagt var fyrir al-
þingi 1869. í þessu tilliti má það nægja að vísa til þess, sem
ítarlega er skýrt frá um þetta atriði í ástæðunum fyrir téðu
frumvarpi, og sér í lagi um það, að enginn vegur var til að
koma frekari kröfum fram gagnvart fjárveitingarvaldi konungs-
ríkisins. Eptir því horíi, sem málið var komið í, og af því að
alþingi á ýmsum tímum hafði farið því fastlega fram, að gjörður
væri aðskilnaður á fjárhagssambandi íslands við konungsríkið, er
það var álitið sem nauðsynlegt skilyrði fyrir framförum lands-
ins, urðum Vjer að álíta það harla áríðandi, að mál þetta yrði
ráðið af á sem beztan liátt fyrir Island, og eptir að tekizt hafði
að koma þessu til leiðar með lögum 2. janúar 1871, er málið
þarmeð alveg á enda kljáð, svo því hvorki á að raska né verður
raskað.
Að því, er að öðru leyti snertir þegnleg álitsmál, sem
komin eru frá alþingi, skal þess getið, sem hér segir:
þessar réttarbætur hafa gjörðar verið um þau mál, sem
Vér höfum fengið um þegnlegar tillögur Vors trúa alþingis:
1. Tilskipun 27. janúár 1872, um eptirlaun handa öðrum
yfirdómara og jústizsekretera í hinum konunglega íslenzka lands-
yfirrétti, Bonedikt Sveinssyni, sem hefir verið vikið frá embætti;
2. Tilskipun 12. febrúar 1872, um fiskiveiðar útlendra við
ísland og fl.;
3. Tilskipun fyrir ísland sama dag, um síldar- og upsaveiði
með nót;