Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 628
620
UM GIPTINGARLEYFI FYRIR PREST.
1873. fyrir lögboðið gjald, sem er 16 rd. 80 sk., en það verður að
27. mai. telja til í reikningum hlutaðeiganda amtmanns á venjulegan
hátt.
27. maí. 41. Bréf dómsmálastjórnarinnar til landshöfðingjans
yfir íslandi, um brúargjörð yfir Þjórsá og
Ölfusá
Með bréfi, 8. oktbr. f. á., senduð þér herra landshöfðingi,
sem þá voruð stiptamtmaður yfir fslandi, bænarskrá frá fundi
nokkrum, er haldinn var i fyrra í Eangárvallasýslu, um að fá
opinberan styrk, til þess að láta reyndan mann rannsaka, hvort
hægt væri eptir því, hvernig þar liagar til, að leggja brýr yfir
þjórsá og Ölfusá, og ef svo væri, að búa til uppdrætti og áætl-
un um kostnaðinn við brúargjörð þessa, og hafið þér stungið uppá,
að stjórnarráðið hlutist til um, að sendur verði í þessu skyni
verksmiður til íslands, sem einnig ef því verður við komið rann-
saki, hvort hægt sé að gjöra höfn við Portland (Dyrhólma)1 í
Skaptafellssýslu, og að kostnaðurinn við þetta framyfir þá 110
rd., sem skotið var saman á fyrnefndum fundi, verði greiddur úr
landssjóðnum, eða ef þetta eigi að öllu leyti.fæst hjá landssjóðn-
um, að veita megi 100 rd. tillag úr vegasjóði suðuramtsins til
rannsókna um brúargjörðina, og 100 rd. úr jafnaðarsjóðnum til
þess að rannsaka, hvort. höfninni verði komið upp.
Útaf þessu gefst yður til vitundar, yður til leiðbeiningar og til frekari
framkvæmda, að stjórnarráðið mun veita það fé, sem á vantar, af
landssjóðnum, með því skilyrði, að sækendur og fyrnefndir sjóðir
greiði þá 810 rd., sem getið er um að framan, og höfum vér
þar að auki hlutazt til um, að cand. pol-ytechnices Windfeldt-
Hansen fari héðan til íslands með póstgufuskipinu í næstkom-
‘) Tíbindi um stjórnarmálefni Islands, III., 220-