Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 648
640
UM AÐGJÖKÐ Á KIKKJl'.
1873. gjörðinni á Vestmannaeyja kirkju, og með því nú heldur ekki
5. jtili. kemur að því, að hann taki að sér fangelsisgjörðina á téðuin
eyjum, eins og þér munuð sjá af öðru bréfi dómsmálastjórn-
arinnar, dagsettu 3. þ. m., — en það er í ráði, að fela húsa-
smið Sveini Sveinssyni þaö verk á hendur —, hefir stjórnarráð-
inu fundizt það réttast, að hætta við þá fyrirætlun, að láta
Klentz takast á hendur aðgjörðina á kirkjunni, heldur leitast
einnig við að fela Sveini Sveinssyni aðgjörðina, ef þér álítið
hann hæfan til þess.
Ef svo fer, mælumst vér til, að þér, herra landsliöfðiugi,
gjörið samning við hann um, að hann taki að sér téð verk allt
fyrir ákveðið kaup eptir samningi á næsta ári, samkvæmt eptir-
riti því af áætlun og lýsingu Klentz's sem fylgði með brétí
stjórnarráðsins til stiptamtmannsins yfir Islandi, 25. maí f. á.,
og má kaupið ekki fara fram úr 1,100 rd. Til leiðbeiningar
við aðgjörðina sendurn vér með þessu bréfi fyrirmynd, sem þakiö
verði sniðið eptir, og ágrip af bréfi til dómsmálastjórnarinnar
frá Klentz, dagsettu 24. ágúst 1871. Jafnframt og vér bætum
því við, að fé það, sem með þarf, auk þeirra 300 rd., sem kirkj-
an hefir til, mun verða tekið í fjárhagsáætlunina fyrir næsta
reikningsár, mælumst vér til, að fá skýrslu um ráðstafanir yðar í
þessu tilliti.
8. júi;. 00. Bréf dómsmálastjórnarinnar til etazráðs og aðal-
verzlunarfulltrúa, Hans A. Clausens, um heimt-
ingn brennivínsgjalds.
Eptir að stjórnarráðið í bréfi 15. marz þ. á. hafði svarað
bænarskrá uokkurri, þar sein þér, herra etazráð, og nokkrir aðrir
íslenzkir kaupmenn sóktu um, að ýmsir annmarkar, sem þóktu
vera á tilskipun handa íslandi um gjald af brennivíni og öðrum
áfengum drykkjum, yrði leiðréttir, hafið þér á ný sent stjórnar-
ráðinu bænarskrá, dagsetta 30. aprílm, þ. á. og mælzt til,