Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 656
648
TM GJALD AF BRENNIVÍNl.
1873. fermingu skipsins, sem með þarf, til þess að sanna, að eigi
4. ögúst. 'ia8 veri® breytt nm þær vörur, sem sagðar ern skemmdar,
o. s. frv.
Skyldi það koma fyrir, að nokkur tími líði frá því rann-
sóknin var heimtuð, þangað til henni er komið fram, eða lög-
reglustjóri gjöri aörar ráðstafanir, án þess að hlutaðeiganda
skipstjóra eða farmseiganda verði kennt um það, og sá, sem í
hlut á, þykist ekki geta frestað að færa á land hinar vörurnar,
sem eru í skipinu, skal það, hvernig sem á stendur, vera skil-
yrði fyrir því, að hann geti búizt við að fá fyrnefnda lækkun á
gjaldinu, að það verði sannað á annan hátt, sem eptir málavöxt-
um þykir nægja, að þeir annmarkar, sem sagt er til, hafi verið á,
þegar byrjað var á affermingunni.
?. ágúst 64. Bréf kirkjn- og kennslustjórnarinnar til Iandshöfð-
ingjans yfir Islandi, um staðfesting á branðaveit-
ingum stiptsyfirvaldanna-
í brefi, dagsettu 14. maím. þ. á., hafið þér, herra landshöfð-
ingi, spurt að, hvort ákvörðun sú í erindisbréfi landshöfðingjans
yfir íslandi, 29.júlí f.á„ 20. gr., að staðfesting sú á brauðaveit-
ingum stiptsyfirvaldauna á íslandi, sem hingað til hefir verið
áskilin konungi, skuli faliu á hendur landshöfðingja, sé svo að
skilja, að liann í sínu nafni gefi téða staðfestingu, eða fyrir hönd
konungs og í hans nafni, og ef staðfestingin verði gefin í nafni
landshöfðingjans, hvort þá greiða skuli gjald eins og áður var
gjört.
Útaf þessu gefst yður til vitundar, yður til leiðbeiningar og
til þess þér birtið það, að þér, herra landshöfðingi, skuluð í yðar
eigin nafni gefa téða staðfesting, og verður eigi greidt neitt
gjald fyrir.