Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 669
OM LESTRARBÓK HANDA ALÞÝDU.
661
72. Bref kirkju- og kennslustjórnarinnar til landsliöfó-
ingjans yfiríslandi, um styrk til þess aö gefa út
lestrarbók handa aiþýöu-
í bréfi, dagsettu 31. niaí þ. á., hafið þer, herra landshöfð-
ingi, sent hingað bænarskrá, þar sem prófastur þórarinn Böðvars-
son heíir sókt um, að kostnaðurinn við prentun og útgáfu lestrar-
bókar fyrir alpýðu, sem hann hafi tekið saman, megi greiðast úr
landssjóðnum, gegn því, að höfundurinn sleppi tilkalli til ritlauna
og að allur ágóðinn við sölu bókarinnar falli til alþýðuskóla
nokkurs á íslandi, sem hann hefir í liyggju að koma upp; hafið þér
nú, eptir að þér hafið fengið álit stiptsj’firvaldanna, stungið uppá,
að veita megi sækjandanum af því fé, sem á yfirstandandi og næstu
reikningsárum sé ætlað til óvissra útgjalda Islands, 25 rd. styrk
fyrir hverja örk téðrar lestrarbókar, með því skilyrði, að söluverð
bókarinnar verði ekki meira en 1 rd. 32 sk., og að skýrsla
verði, þegar að því kemur, send stiptsyfirvöldunum um, hvernig
ágóðanum, að frádregnum kostnaði, sé varið; mætti bókin eigi
vera stærri en 40 arkir, og skyldi mega greiða sækjandanum
styrkinu, þegar öll bókin væri komin út, eða ef hún kæmi út í
tveimur eða þremur bindum, þá fyrir hvert bindi eptir
arkatali.
Útaf þessu gefst yður til vitundar, að það getur ekki kom-
ið til tals, að veita nokkurn styrk til þessa á yfirstandandi ári,
með því búið er að mestu leyti að verja því fé, sem ætlað er til
óvissra útgjalda, en það látum vér vera undir yður komið, að
ákveða, hvort veita megi sækjandanum styrk til útgáfu bókar-
innax af því fé, sem yður verða fengin ráðin yfir á næsta ári
og framvegis, og þá með hvaða skilyrðum; mun stjórnarráðið
taka þátt í kostnaðiuum, ef á þarf að halda, samkvæmt reglum
þeim, sem settar eru með bréfi dómsmálastjórnarinnar 30. júní
þ. á , en samt er byggt á því, að styrkurinn alls verði ekld
meiri en 500 rd. Fylgiskjölin sendum vér yður aptur.
1873.
14. ágúst.