Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 687
UM ALDURSLEYFI FYRIR PRESTSEFNI. 679
innar heflr hans hátign konunginum Jióknazt allramildilegast 16.
þ. m. að veita prestaskólakandídat Birni þorlákssyni leyfi til að
láta vígjast til prests, þegar hann sé orðinn 23 ára að aldri.
Um leið og þetta verður yður hérmeð til vitundar gefiö,
yður til leiðbeiniugar og til þess þér kunngjörið það, mælist
stjórnarráðið til, að þér sjáið um, að meðfylgjandi leyfisbréf verði
fengið fyrnefndum Birni þorlákssyni í hendur.
85. Bréf kirkju- og kennslustjórnarinnar til lands-
höfðingjans yfir íslandi, um prestsvígslu skóla-
lærisveins.
Útaf bænarskrá nokkurri, þar sem fyrrum lærisveinn við
hinn lærða skóla í Reykjavík, Jón Bjarnason frá Straumfirði, sem
hefir gengið undir fyrra hluta burtfararprófs við nefndan skóla, á
ný hefir sókt um, að hann megi vígjast til prests, og sækja um
eitthvert hinna lökustu brauða á íslandi, þótt hann .eigi hafi
gengið undir eða treysti sér til að ganga undir próf þau, sem
að lögum eru skilyrði fyrir því, sem hann hefir sókt um, hafið
þér, herra landshöfðingi, um leið og þér vísið til þess, sem þér sem
stiptamtmaður áður hafið látið í Ijósi um lika bænarskrá frá hinum
saina, í bréfi, dagsettu 27. dag ágústm. þ á,, lagt til, að leyfi
það, sam sókt er um, verði útyegað, en samt með því skilyrði,
að sækjandi gangi undir og' standist próf í prestlegri guðfræði,
sem biskupinn segir fyrir um og heldur, áður en honum verði
leyft að vígjast til prests.
Útaf þess gefst yður til vitundar, yöur til leiðbeiningar og
til þess þér birtið það, að stjóruarráðiö, eins og þegar liefir verið
sagt í bréfi 24. júní 18711, verður að álíta það mjög ísjárvert, að láta
nokkurn fá embætti í andlegri stétt, sem ekki hefir fullnægt þeim
1873.
25. oktbr.
25. oktbr.
') Tíbindi um stjóruarmálefni íslands, 111., 191.