Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 721
TILSKIPUN UM HEGNINGAHVALD.
713
ingarluísiö í Reykjavílc, verða sekir í, ef liann álítur, að þær
verði afplánaðar með einhverri af refsingum þeim, sem hér skulu
taldar:
a. harðari hegningarvinnu um allt að 8 vikna tíma;
b. líkamlegri refsingu, allt að 27 höggum með hnúta-kaðli,
kaðal-enda, eða reyrpriki, þá er karlmenn eiga í hlut, sem
eru eldri en 18 ára; allt að 18 höggum með reyrpriki, sé
þeir frá 15 til 18 ára að aldri, en ef börn eiga í hlut,
sem ekki eru eldri en 15 vetra, með allt að 18 vandar
höggum;
c. hegningu við vatn og brauð, allt að þrisvar sinnum 5 dög-
um, sem skal út tekin í kompu sér, en þess skal samt
gætt, sem fyrir er mælt í hinum almennu hegningarlögum
fyrir ísland 25. júní 1869, 23. greiu;
d. fangelsi sér í kompu, allt að 6 mánuðum, eptir því, sem
atvik eru til, annaðhvort án þess að þeim seka leyfist, að
hafa það, sem hann hefir unnið sér inn með aukavinnu,
til þess að fá sér aðra eða meiri fæðu, en ákveðin er, eða
án þess hann sé látinn vinna, en samt má ekki beita síðar-
nefndri liegning lengur í senn en í mesta lagi 4 vikur,
og skal líða ámilli minnst 1 vika.
2. grein.
Líkamlegri refsingu má eigi beita, fyr en búið er að leita
álits læknisins um, hvort fanginn geti þolað hana, og skal hún
ávallt framkvæmd í viðurvist bæjarfógetans í Reykjavík, en ekki
í augsýn liinum föngunum, nema landshöfðingi hafi beinlínis ákveðið
það.
Sérhver sá fangi, sem út tekur slíka refsingu, skal þegar á
eptir settur í kompu einn sér til næsta dags. það er að öðru
leyti vitaskuld, að líkamlegum refsingum verði venjulega ekki
beitt, nema það hafi sýnt sig, að vægari aðferð, t. a. m. ofaní-
gjöf eða fangelsi í kompu sér um tíma, hafi verið árangurslaus.
3. grein.
Álíti landshöfðinginn, að afbrotið sé svo saknæmt, að það
Tíð. um stjórnarmál. III. 47
1874.
5. janúar.