Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 724
716
TILSKIPUN UM HEGNINÖAKVALD.
1874. árinu 1875, — on nauðsynlegt skilyrði fyrir því, að hegningar-
5. janúar. húsið verði notað, er það, að tilskipun um hegningarvald fyrir
stjórn liegningarhússins komist í gildi áður —, varð dómsmálastjórnin
að leggja það til í þegnlegri skýrslu sinni um frumvarpið, að
það nú þegar yrði óbreytt gjört að lögum, svo lagaboðið gæti
komizt lioim til íslands með fyrstu póstskipsferð 1874 og yrði
birt á manntalsþingum.
5. janúar. 3. Tilskipun um hlunnindi nokkur fyrír sparisjóði á ís-
landi (á íslenzku og Dönsku).
Vér Christian hinu Níundi, o. s. frv. Gjörum
kunnugt: Eptir að Vér höfum meðtekið þegnlegt álitsskjal
Vors trúa alþingis um frumvarp, sem fyrir það lieflr verið lagt,
til tilskipunar um lilunnindi nokkur fyrir sparisjóði á íslandi,
bjóðum Vér og skipum fyrir á þessa leið:
Landshöfðinginn yfir íslandi skal hafa vald til fyrir nákvæmar
ákveðið tímabil og með þeim skilyrðum viðvíkjandi reikningsskil-
um o. fl., som þörf kann á að þykja, að veita sparisjóðum, sem
eru eða kunna að verða stofnaðir þar, og sem svo er komið
fyrir, að álíta megi, að næg trygging sé fyrir því, að þeir sé
fullveðja, hlunnindi þau, sem hér skulu talin, annaðhvort öll eða
nokkur af þeim:
1) að stjórn sjóðsins geti, ef viðskiptabók, sem látin er af
hendi fyrir fé, sem sett er í sjóðinn, glatast, með auglýs-
ingu, sem prentuð sé þrisvar sinnum samfleytt í þeim
tíðindum, sem birta skal í opinberar auglýsingar á ls-
landi, innkallað með 6 mánaða fresti hvern þann, sem í
höndum kann að hafa viðskiptabókina, og ef enginn heflr
sagt til sín, áður téður frestur er liðinn, borgað þeim
hlutareiganda, sem viðskiptabókina hefir fengið, upphæðina,
án þess að nokkur annar, sem viðskiptabókin kann að
vera afsöluð, þar fyrir geti búið kröfu á hendur téð-
um sjóð;