Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 741
UM SAMEINING KEYKJAVÍKUR OG GULLBRINGU SÝSLU. 733
samkvæmt þegnlegum tillögnm dómsmálastjóruarinnar, þóknazt
31. f. m. allramildilegast að fallast á:
að landfógetaembættið á íslandi og bæjarfógetaembættið í
Reykjavík, sem nú eru sameinuð, skuli að skilin frá 1. júlím.
þ. á., og téð bæjarfógetaembætti frá sama tíma sameinað við
Gullbríngu- og Kjósarsýslu í suðurumdæminu;
að leggja skuli til landfógetaembættisins í árieg la.un
upphaflega 1600 rd., sem vasa um 200 rd., fyrir hver 5 ár í
embættinu, unz þau eru orðin 2400 rd., í húsaleigustyrk 150 rd.
og 500 rd. til skrifstofukostnaðar, auk afnota Orfiriseyjar, og
þess gjalds, sem greiðist fyrir að taka við fé í jarðabókarsjóð-
inn, til þess það verði goldið aptur úr aðalféhirzlunni, — en
það skal vera 1 af hverju þúsundi;
að veita skuii hinu sameinaða sýslumanns- og bæjarfógeta-
embætti 300 rd. t-illag af landssjóðnum, auk þeirra tekja, sem
liingað til hafa verið samfark hvoru embættinu útaf fyrir sig, og
sem eigi hafa verið goldnar úr landssjóðnum;
að aldursréttindi Árna kansellíráðs Thorsteinsonar að því
leyti, er snertir launaviðbót þá eptir aldri, sem getið var um að
framan, skuli talin frá því að honum var veitt það embætti, sem
Iiann nú heíir, og
að það verði tekið fram, er bæjarfógetaembættinu og sýsl-
unni er slegið upp, að sá, sem í hlut á, verði að gangast undir
allar þær breytingar, sem kunna að verða gjörðar á. embættinu
sjálfu, launa gjaldinu og tekjunum.
Auk þessa hefir hans hátign konungurinn allramildilegast
samþykkt, að greiða megi úr landssjóðnum gjaldauka þann,
sem leiðir af þessu á tímabilinu frá ]. júlí til 31. desbrm. þ. á.,
og sem er 274 rd. 48 sk.
jþetta gefst yður, herra landshöfðingi, til vitundar, eður til
leiðbeiningar og til þess þér birtið það, og vísum vér til stjórnar-
tíðindanna dönsku (Ministerialtidende), þar sem auglýst er, að
sýslan og bæjarfógetaembættið sö laust.
1874.
26. febrúar.