Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 742
734 UM AÐGJÖKÐ Á HÓSI LANDSHÖFÐINGJA.
1874. 13. Bréf dómsmálastjórnarinnar til landsliöfðingjans
27. febrúar. yfir íslandi, um aðgjörð á landshöfðingjahúsinu.
Með bréfl, dagsettu 5. desbrm. f. á., hafið þér, herra lands-
höfðingi, sent hingað reikning yfir kostnaðinn við aðgjörð þá á
landshöfðihgjahúsinu, sem fram fór á árinu sem leið, og haíið
þér stungið uppá, að greiða megi það fé, sem varið liefir verið
til þessa fram yíir það, sem ætlazt var á, og sem er 127 rd.
28 sk., af þeirri upphæð, sem ætluð var til óvissra iitgjalda á
reikningsárinu, sem leið; jafnframt getið þér þess, að eigi sé eun
lokið við aðgjörðina á hliðinu, en til þess voru ætlaðir 40 rd.
Útaf þessu gefst yður til vitundar, yður til leiðbeiningar, að
stjórnarráðið leyfir, að taka megi fyrnefndar upphæðir, sem sam-
tals eru 167 rd. 28 sk. af því fé, sem ætlað er til óvissra út-
gjalda á yfirstandandi reikningsári, og sem yður eru fengin ráðin
yfir, rneð því jarðabókarsjóðs-reikningurinn er miðaður við 31.
desbrm. f. á., og verður því eigi þessi kostnaður greiddur af
þeirri upphæð, sem ætlað var til óvissra útgjalda á reikningsárinu,
sein liðið er, enda er þegar búið að verja öllu því fé.
27. febrúar. 14. Bréf dómsmálastjórnarinnar til landshöfðingjans
yfir íslandi, um lækkun á jarðarafgjöldum.
Með bréfi, dagsettu 29. nóvbrm. f. á., hafið þér, lierra lands-
höfðingi, sent hingað skoðunargjörð yfir jarðirnar Eystri-Lynga,
Fagradal, Nýjabæ og Efri-Steinsmýri, sem heyra undir Kirkju-
bæjar og þykkvabæjar-klausturs góz, og hafið þér mælt fram
með því, samkvæmt uppástungu hlutaðeiganda umboðsmanns, að
landsetum á þessum jörðum vorði veitt sú lækkun á afgjaldinu
af jörðunum, sem hér skal getið:
1. Landsetanum á Eystri-Lyngum, Ólafi Sveinssyni, veitist
enn fremur uin þrjú liin næstu ár sií linun, sem honum var veitt,