Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 757
ÍILSKIPUN UM HKGNINGARVINNU.
749
uppástungu þeirri, sem getið er um í 15. g'r., skal láta hann 1874.
lausan úr hegningarhúsinu, og eptir nákvæmari ráðstöfun lands- 28. febrúar.
höfðingjans fá hann í liendur lögi-eglustjórninni á þeim stað, þar
sem búið er á undan að útvega honum atvinnu, og skal hann
þar settur undir sérstaklega umsjón lögregluvaldsins, og má hann
því eigi fara burtu úr hreppnum án leyfis hreppstjórans né úr
lögsagnarumdæminu án leyfis lögreglustjórans. þiegar liann er
látinn laus skal stjórn hegningarhússins heimilt að láta hann fá allt
að 2/a af því, sem hann hefir unnið sér inn með aukavinnu og
sparað, ogskal hún sendahlutaðeigandi lögreglustjórn skriflega skýrslu
um fatnað þann og aðra muni, sem hann hefir með sér þá er
hann er látinn laus, um helztu atriði í lífi lians (personalia),
lýsing á útliti hans og skýrslu um það, hvernig hegðun hans og
heilbrigðisástand hefir verið í hegningarhúsinu. þar að auki
skal sá hluti, er honum er veittur, af því, sem hann hefir unuið
sér inn með aukavinnu, sendur hlutaðeigandi lögreglustjórn, sem
sjálf fær fanganum það í hendur annaðhvort allt saman eða svo
mikið af því, sem henta þykir, eptir því, hvernig á stendur.
Stjórnin skal brýna fyrir honum skilyrðin fyrir því, að hann
sé náðaður, og fá honum í hendur lausnarbréf, þar sem talin
eru upp þessi skilyrði, sem eru: að hann sé iðjusamur, ráð-
vandur og reglusamur; að hann nákvæmlega breyti eptir því,
sem lögreglustjórnin kynni að leggja honum fyrir, og að hann að
öörum kosti án frekara dóms vcrði aptur settur í hegningarhúsið, til
þess að úttaka það, sem eptir er af hegningu þeirri, sem hann
var dæmdur í.
Fullkomið frelsi fær því fanginn ekki, fyr en sá liegn-
ingartími er liðinn, sem hann er dæmdur í, eða hann verður
náðaður til fulls, ef liann hefir verið dæmdur í æfilanga hegn-
ingarvinnu. Til þess tíma er sá, sem látinn er laus með
ákveðnum skilyrðum, eigi kominn undan umsjón hegningarhússins,
enda þótt hún sé fjarlægari, og verður hann því heldur ekki
dreginn út á fangaskránni, en í hana verða ritaðar skýrslur þær,
sem hlutaðeigandi lögreglustjórn venjulega þriðja hvern mánuð
skal senda stjórn hegningarhússins. Verði honum leyft að fiytja