Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 758
750
TILSKIPUN UM HEONINGAKVINNU.
1874.
28. fébrúar.
sig úr hreppnum, skal lireppstjóriun þegar í stað skýra lögreglu-
stjóra frá því og hreppstjóranum í þeim hrepp, sem hann ftytur
í. Fái hann leyfi til að flytja sig úr lögsagnarumdæminu, skal
lögregliistjórinn tilkynna það lögreglustjóranum í því lögsagnar-
umdæmi, þar sem liann sezt að, svo að, þá er liann kemur í
lögsagnarumdæmið, hlutaðoiganda hreppstjóra verði eí' á þarf
að halda sagt fyrir um, hvað gjöra skuli. fegar svo á stendur,
skal söinuleiðis þegar í stað senda hegníngarhúsinu skýrslu um
fiutninginn.
Sá, som látinn er laus með ákveðuum skilyrðum, iiefir alls
enga kröfu til framfærslu af hálfu hegningarhússins, en verður
að öllu leyti sjálfur að sjá fyrir sér. Á hinn bóginn er hann
heldur ekki framar liáður ákvörðunum þeim, sem gilda uin hegn-
ingarhúsið, heldur að eins hinum almennu borgaralegu löguin og
þeim skilyrðum, sem sett voru fyrir hinni ófullkomnu hegningar-
uppgjöf. Brjóti hann gegn því, sem iögreglustjórn sú, er hefir
umsjón yfir iionum, kaun að leggja honum fyrir sérstaklega, eða
ef hegðun hans yfirhöfuð er á þá leið, að hann eigi uppfylli
hina fyrstu ákvörðun í lausnarbréfi því, sem getið er um að
framan, að hann sé iðjusamur, ráðvandur og reglusamur, skal
lögreglustjórnin tilkynna st.jórn hegningarhússins það, og má þá
eptir uppástungu liennar við landshöfðingja og samkvæmt úrskurði
hans setja hann aptur í hegningarhúsið, til þess iiann úttaki þar
það, sem eptir er af hegningartíma þeim, sem honum var gefinn
upp með ákveðnum skilyrðum. Um þetta skal senda skýrslu til
stjórnarráðsins. Ojöri hann sig sekan í hegningarverðu atliæfi,
skal hann, ef það eigi varðar hegningarvinuu, fyrst úttaka refs-
inguna fyrir það, og skal viðstöðulaust þar á eptir setja hann í
hegningarhúsið, en ef hegningarvinna liggur við, skal hann fyrst
úttaka það, sem eptir var af hegningunni, sem hann fyrst var
dæmdur í, áður en hann er látinn sæta hinni síðari hegningu.
þegar búið er að ná hinu fullkomna frelsi, skal borga út það,
sem eptir var haldið af því, sem fanginn hafði unnið sér inn
með aukavinnu, og ef sá, sem í hlut á, deyr innan þess tíma,
skal það fengið í hendur hlutaðeiganda skiptarétti, svo það
verði talið með tekjum í búinu eptir hann.