Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1989, Qupperneq 26

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1989, Qupperneq 26
6. töluliður oröast svo: „Allir aðilar sem hafa hér á landi tekjur af leigu, afnot- um eða rétti til hagnýtingar á lausafé, einkaleyfum, hvers konar réttindum eða sérþekkingu skulu greiða tekjuskatt af þcim tekjum.“ Pessi ákvæði taka bæði til manna og lögaðila. Ákvörðun skattsstofns fer eftir ákv. 62. gr. Tekjuskatt- ur manna reiknast skv. 67. gr. án persónuafsláttar, en tekjuskattur lögaðila er sá sami og innlendra félaga. Tekjur sem falla undir 6. tl. teljast launatekjur skv. skilgreiningu laga um staðgreiðslu opinbcrra gjalda. Er því skylt að halda eftir staðgreiðslu af þessum tekjum. í þeim tvísköttunarsamningum sem við höfum gert gildir sú meginregla að þóknanir, sem myndast hér- lendis og greidd er aðilum heimilisföstum í þeim ríkj- um, sem tvísköttunarsamningarnir gilda við, eru ekki skattlagðar hér nema um sé að ræða fasta atvinnustöð, sem þóknanirnar tengjast. Með þóknunum í þessu sambandi er átt við hvers konar greiðslur sem tekið er við sem endurgjald fyrir afnot eða rétt til að hagnýta hvers konar höfundarrétt á bókmennta-, lista- eða vísindasviðum. einkaleyfi, vöru- merki, mynstur eða líkön, áætlanir, leynilegar formúlur eða framleiðsuaðferð, og fyrir afnot eða rétt til að hagnýta iðnaðar-, viðskipta- eða vísindabúnað eða fyrir upplýsingar um reynslu á sviði iðnaðar, viðskipta eða vísinda. 7. töluliður er þannig: „Allir aðilar sem hafa tekjur af íslenskum hlutabréfum, stofnbréfum eða öðrum réttindum til hlutdeildar í hagnaði eða rekstri íslenskra fyrirtækja skulu greiða tekjuskatt af þeim tekjum." Ákvörðun tekjuskattsstofns fer eftir ákv. 62. gr. eftir því hvort um mcnn eða lögaðila er að ræða. Persónuaf- sláttur er enginn og skatturinn er 20% bæði fyrir mcnn og lögaðila. Tekjur sem falla undir þennan tölulið teljast launa- tckjur skv. skilgreiningu laga um staðgreiðslu opinberra gjalda og því skylt að halda eftir staðgreiðslu af þessum tekjum. Aðallega mun hafa reynt á þennan tölulið varðandi skattgreiðslur af arði og hafa fallið úrskurðir hjá ríkis- skattanefnd þar um. Má í því sambandi nefna úrskurð nr. 102/1982. í því máli var m.a. um það deilt hvort draga mætti arðsfrádrátt frá fengnum arði. Ríkisskatt- stjóri taldi að frádráttur skv. 2. tl. B-liðs 1. mgr. 30. gr. skattalaganna væri heimill þeim sem bæru takmarkaða skattskyldu og staðfesti ríkisskattanefnd það. Meginreglan í tvísköttunarsamningnum er sú varð- andi ágóðahluti að þá megi skattleggja í því ríki þar sem móttakandinn er heimilisfastur. Þrátt fyrir þessa meginreglu má einnig skattleggja í því ríki, þar sem félagið sem ágóðahlutinn greiðir er heimilisfast, en sá skattur, sem þannig er álagður má að hámarki vera: a) 5% af brúttó fjárhæð ágóðahlutanna ef viðtakandi er félag sem ræður beint yfir að minnsta kosti 25 af hundraði eignarhlutdeildar í félaginu sem ágóðahlut- ina greiðir. b) 15% af brúttó fjárhæð ágóðahlutanna í öðrum til- vikum. Um 8. töluliðinn er lítið að segja, en hann á við um skattlagningu diplómata af tekjum frá innlendum aðil- um. Loks er það 9. töluliöurinn er varðar eignarskatt- skyldu, en þar segir: „Allir aðilar sem eiga eignir sem skattskyldar tekjur gefa skv. 4.-8. tl. skulu greiða eignarskatt af þeim eign- um.“ Samkvæmt 2. málsgr. 76. gr. má draga frá eignum skv. 4. tölulið, þ.e. eignum sem tengjast fastri starfs- stöð, þær skuldir sem beint tengjast starfseminni hér- lendis, en samkvæmt lokamálsgr. 76. gr. má frá eignum aðila sem um ræðir í 5.-8. tölul. einungis draga þær skuldir sem á eignum þessum hvfla. Álagning eignar- skattsins fer eftir ákvæðum 84. greinar, þ.e. notuð er eignarskattsprósenta lögaðila, nú 1,2%, hvort sem um er að ræða lögaðila eða menn og enginn hluti eignar- skattsstofnsins skattfrjáls. Eins og fram kom er það skilyrði fyrir skattlagningu skv. þessum tölulið að eignir þurfi að gefa af sér tekjur skv. 4.-8. tl. 3. greinarinnar. Þannig verður t.d. ekki um að ræða eignarskatt af skuldabréfum, þar sem vaxtatekjur og verðbætur af slíkum bréfum eru ckki skattskyldar skv. áðurnefndum töluliðum. Ekki eru fyrirliggjandi upplýsingar um það hversu margir aðilar eru skattlagðir árlega og hversu mikill skattur er álagður samkvæmt hinum ýmsu töluliðum 3. gr. skattalaganna. Mér hefur virst sem ekki hafi verið gengið hart eftir því af skattyfirvöldum að krefjast skattgreiðslna vegna þeirra tekna sem upp eru taldar í 2.-8. töluliðum 3. greinar. Gæti því hugsast að ríkissjóður yrði af ein- hverjum skatttekjum af þessum sökum. Sérstaklega gæti það þó átt við um aðila, sem heimilisfesti hafa í ríkjum, sem við höfum ekki gert tvísköttunarsamninga við. TVÍSKÖTTUNARSAMNINGAR Almennt um tvísköttunarsamninga Venjuleg skilgreining á tvísköttun er sú að með tví- sköttun sé átt við álagningu hliðstæðra skatta á sama skattstofn fyrir sama eða svipað tímabil á sama skatt- þegninn í tveimur eða fleiri ríkjum. Langt er síðan farið var að huga að leiðum til þess að komast hjá tvísköttun, en það mun hafa verið árið 1921 sem Þjóðabandalagið, eða nefndir á þess vegum hófu 26

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.