Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1989, Síða 38
AÐALFUNDUR FLE 1989
Aðalfundur FLE 1989 var haldinn laugardaginn 25.
nóvember sl. að Holiday Inn. Formaður félagsins,
Helgi V. Jónsson setti fundinn og byrjaði á því að
minnast látins félaga, Ragnars Á. Magnússonar, sem
lést sl. haust. Fundarstjóri var kosinn Sigurður Stefáns-
son og tilnefndi hann Sigurð P. Sigurðsson sem fundar-
ritara.
Dagskrá fundarins var með hefðbundnum hætti sam-
kvæmt samþykktum félagsins og verður hér gctið helstu
atriða.
Skýrsla stjórnar var flutt af formanni félagsins, Helga
V. Jónssyni. Fór hann nokkrum orðum um hclstu at-
riðin í starfseminni sl. starfsár, en vísaði að öðru leyti
til áður útsendrar ársskýrslu stjórnar, þar sem ítarlega
er fjallað um allt félagsstarfið.
Ársreikningur félagsins sem sendur var út fyrir fund-
inn með ársskýrslu stjórnar, var skýrður af gjaldkera
FLE, Guðmundi J. Þorvarðarsyni. Ársreikningurinn
var síðan samþykktur samhljóða er hann var borinn
upp til samþykktar.
Formenn fastanefnda FLE gerðu grein fyrir störfum
sinna nefnda á sl. starfsári ásamt þeim málum er nefnd-
irnar varðar. Formaður Álitsnefndar var Helgi V. Jóns-
son, formaður Endurskoðunarnefndar Rúnar Bj. Jó-
hannsson, formaður Reikningsskilanefndar Stefán
Svavarsson og formaður Mer.ntunarnefndar Hallgrímur
Þorsteinsson.
Stjórn FLE lagði fram tillögu til breytinga á sam-
þykktum félagsins. Tillagan fjallaði um stjórnarkjör
FLE en samkvæmt henni var gert ráð fyrir þeirri brcyt-
ingu, að auk þess að kjósa formann sérstakri kosningu
eins og verið hafði, skyldi varaformaður einnig kosinn
sérstaklega. Var þessi tillaga samþykkt samhljóða er
hún var borinn undir atkvæði.
Á fundinum voru nýir menn kosnir í stað þeirra, sem
gengu úr stjórn. Úr stjórn gengu að þessu sinni, Helgi
V. Jónsson, formaður, ásamt Guðmundi J. Þorvarðar-
syni, gjaldkera og Sigurði P. Sigurðssyni, ritara. Árni
Tómason var kosinn nýr formaður og Rúnar Bj. Jó-
hannsson vara- formaður. Meðstjórnendur til tveggja
ára voru kosnir Hallgrímur Þorsteinsson og Tryggvi
Jónsson, en Lárus Finnbogason situr áfram í stjórn
fram til næsta aðalfundar. Varamenn í stjórn voru kosin
þau Karlotta Aðalsteinsdóttir og Guðmundur Snorra-
son. Endurskoðandi félagsins var kosinn Sverrir Sverr-
isson og Stefán Bergsson til vara.
Kosning aðalmanna og varamanns í fastanefndir FLE
var eftirfarandi:
I Álitsncfd voru Gunnar Sigurðsson og Ólafur Nilsson
kosnir aðalmenn, en Guðmundur J. Þorvarðarson til
vara. Sjálfkjörnir í nefndina voru Árni Tómasson, Rún-
ar Bj. Jóhannsson og Helgi V. Jónsson. I Endurskoð-
unarnefnd voru Sigurður H. Pálsson, Sturla Jónsson og
Ólafur Kristinsson kosnir aðalmenn. í Rcikningsskila-
nefnd voru Stefán Svavarsson. Heimir Haraldsson og
Guðmundur Frímannsson kosnir aðalmenn. 1 Mennt-
unarnefnd vortj Þorvarður Gunnarsson, Guðmundur
Óskarsson og Sigurður Jónsson kosnir aðalmenn. en
stjórn FLE tilnefnir varamenn í fasta- nefndir aðrar en
Álitsnefnd.
Fjárhagsáætlun stjórnar og tillaga um árstillag félags-
manna fyrir næsta reikningsár var lögð fram af fráfar-
andi gjaldkera stjórnar Guðmundi J. Þorvarðarsyni.
Fram kom breytingartillaga um frekari hækkun félags-
gjalda en stjórn hafði lagt til og var sú tillaga samþykkt.
Fjárhagsáætlunin ásamt breyttri tillögu um félagsgjöld
var síðan samþykkt samhljóða.
Undir liðnum önnur mál lagði fráfarnadi formaður
Endurskoðunar- nefndar fram til afgreiðslu tvær tillög-
ur nefndarinnar. Sú fyrri var tillaga að leiðbeinandi
reglum um endurskoðun birgða en sú seinni tillaga að
leiðbeinandi reglum um endurskoðun viðskiptakrafna.
Voru báðar tillögurnar samþykktar samhljóða er þær
voru bornar upp.
Nokkrir félagsmenn tóku til máls undir þessum dag-
skrárlið, en ekki verður hér gerð frekari grein fyrir því.
I fundarlok bað nýkjörinn formaður félagsins Árni
Tómasson fundarmenn að sýna fráfarandi formanni
þakklæti með lófaklappi, fyrir vel unnin störf í þágu fé-
lagsins og sleit að þvt loknu fundi.