Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Page 6

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Page 6
Lárus Finnbogason, löggiltur endurskoðandi. BIRGÐAMAT í SJÁVARÚTVEGI I. INNGANCUR: Það viðfangsefni sem hér verður tekið til umfjöllunar er birgðamat í sjávarútvegi. Svo virðist sem það sé nokkuð misjafnt milli fyrirtækja í sjávarútvegi með hvaða hætti birgðir eru metnar í ársreikningum og með hvað hætti birgðabreyting er framsett. Á þetta fyrst og fremst við um birgðir fullunninna afurða og afurða í vinnslu. Hér verður fyrst gerð grein fyrir því um hvers konar birgðir er að ræða í fyrirtækjum í sjávarútvegi. Síðan verður fjallað um mat á hráefnisbirgðum og rekstrar- vörubirgðum og hvaða vandamál þar kunna að vera til staðar. Áður en kemur að birgðamati fullunninna af- urða og afurða í vinnslu, verður lýst stuttlega fram- leiðsluferli í frystingu til þess að betur sé hægt að glöggva sig á framleiðslukostnaði fiskvinnslufyrirtækja. í kafla um birgðamat fullunninna afurða og afurða í vinnslu verður gerð grein fyrir ýmsum vandamálum sem upp koma við að beita kostnaðarverðsreglunni við birgðamat og ennfremur verður fjallað um þá aðferð að meta birgðir afurða á ,,netto“ skilaverði. Að lokum verður fjallað um framsetningu birgða og birgðabreyt- inga í ársreikningum. II. BIRGÐIR í SJÁVARÚTVEGSFYRIRTÆKJUM: Áður en lengra er haldið er rétt að gera sér grein fyrir um hvers konar birgðir getur verið um að ræða í sjávar- útvegsfyrirtækjum. Því er nauðsynlegt að átta sig á, a.m.k í grófum dráttum, yfir hvaða svið sjávarútvegur spannar. Á mynd 1 er sjávarútvegi skipt upp í tvo megin þætti, þ.e. útgerð og fiskvinnslu og ennfremur hvers lags veið- ar og vinnsla falla undir hvorn flokk. Útgerðinni er skipt í togskip og togbáta, netabáta, nótabáta og aðrar veiðar, en ástæða þessarar skiptingar er sú að mismun- andi aðferðum á að beita við birgðamat veiðarfæra eftir því um hvers konar veiðarfæri er að ræða. Fiskvinnsl- unni er skipt í frystingu, söltun, herslu, síldarsöltun, rækju- og skelvinnslu. mjöl-og lýsisframleiðslu og aðra vinnslu. Einnig eru týndar til nokkrar stoðdeildir sem taka beinan þátt í rekstri útgerðar og vinnslu, en mjög mismunandi er eftir stærð og staðsetningu fyrirtækja hve margar stoðdeildir þau reka. Birgðir í sjávarútvegsfyrirtækjum eru margs konar en hins vegar má skipta þeim upp í eftirfarandi megin flokka, þ.e.: Hráefnisbirgðir. Rekstrarvörubirgðir. Birgðir vöru í vinnslu. og birgðir fullunninna afurða. Almenn skilgreining á hverjum flokki birgða gæti hljóðað þannig: Til hráefnisbirgða teljast birgðir þess efnis eða vöru, sem beinlínis eru efnisþættir í fullunninni afurð. Til rekstrarvörubirgða teljast birgðir vöru sem er hliðstæð hráefni, en samband slíkrar vöru við fullunna afurð er óbeint. Til birgða vöru í vinnslu teljast birgðir afurða sem ekki eru fullunnar. Til birgða fullunninna afurða teljast birgðir þeirra vöru sem lokið er við að framleiða og er tilbúin til sölu. Birgðir sem meta þarf hjá útgerðarfyrirtækjum eru rekstrarvörubirgðir og birgðir fullunninna afurða hjá þeim skipum sem fullvinna afla um borð. Undir rekstrarvörubirgðir falla veiðarfæri, þó ekki í öllum tilfellum, brennsluolíur og birgðir stoðdeilda, svo sem veiðarfæraefni og ýmsir varahlutir, svo nokkur dæmi séu nefnd. Með aukningu fullvinnslu afla um borð í fiskiskipum hefur fjölgað þeim útgerðarfyrirtækj- um, þar sem meta þarf birgðir fullunninna afurða. Fiskiskip sem fullvinna afla um borð eru nánast eins og fljótandi frystihús, sem vinna aflann með líkum hætti og frystihús í landi. Rækjutogarar og stærri rækjubátar fullvinna einnig flestir hluta af þeim afla sem þeir veiða, en stærsta rækjan er pökkuð og fryst um borð og seld beint á markað erlendis. Smærri rækjan er hins 6

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.