Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Síða 8

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Síða 8
FRAMLEIÐSLUFERLI FRYSTING Móttaka/kæling Afísun/þvottur Söltun Hausun Hersla Flökun Roöfletting Snyrting/niöurskuröur Pökkun Frysting Pökkkun (ytrikassar) Frystigeymsla vegar virðist mér sem málið verði mun flóknara þegar um er að ræða það að fiskvinnsla og útgerð fara saman, þá kunna að vakna ýmsar spurningar um hvað telja eigi kostnaðarverð hráefnisbirgða og hráefniskostnað hjá fiskvinnslunni. Á mynd 2 er settur upp rekstrarreikningur fyrir bát sem leggur upp allan afla hjá eigin vinnslu. Dæmið er mjög einfölduð mynd af raunveruleikanum þar sem ekki er gert ráð fyrir að afli sé seldur annað en til fiskvinnslunnar sem gerir út bátinn. Venjan er sú að færa sem hráefniskaup hjá vinnsl- unni, samningsverðið, þ.e. kr. 80 milljónir í þessu dæmi. Hins vegar kann það að vera álitaefni hvort það sé rétt hráefnisverð og hvort meta eigi birgðir hráefnis af eigin bát á þessu verði. Svo vikið sé að mati rekstrarvörubirgða, þá ber að meta slíkar birgðir á kostnaðarverði, nema dagverð sé lægra. Til kostnaðarverðs telst innkaupsverð að við- bættum þeim kostnaði sem fellur á rekstrarvörurnar við að koma þeim á notkunarstað og í notkunarhæft ástand. Hér verður ekki farið út í umfjöllun um birgðamat einstakrar rekstrarvöru hjá fyrirtækjum í sjávarútvegi. Þó verður hér fjallað um nokkur atriði varðandi slíkt mat hjá fyrirtækjum í útgerð. Eins og fram kom hér að framan ber að telja brennsluolíu fiskiskipa meðal rekstrarvörubirgða. en það getur skipt töluverði máli hvort fiskiskip sé með fulla olíutanka á reikningslokadegi eður ei. Þannig tek- ur meðaltogari 120 - 160 þús. lítra af gasoh'u, en verð- mæti þess getur hlaupið á milljónum króna. Veiðarfæri eru í mörgum tilvikum talin meðal rekstr- arvörubirgða og flokkuð meðal veltufjármuna í efna- hagsreikningi. Þau veiðarfæri sem hér um ræðir eru veiðarfæri togskipa og togbáta og veiðarfæri netabáta. Veiðarfæri þessara skipa hafa skamman endingartíma og má áætla hann 1 - 2 ár. Til þess að gefa einhverjar hugmyndir um verðmæti veiðarfæra, má áætla að verð- mæti nýrra veiðarfæra aftan í meðal togara séu u.þ.b. 5 milljónir króna. Veiðarfæri nótaskipa hafa mun lengri endingartíma, þannig má ætla að endingartími loðnunóta sé 6 - 10 ár og síldarnóta jafnvel enn lengri, en endingartími þeirra ræðst þó fyrst og fremst af meðferð og viðhaldi. Til þess að gefa einhverjar hugmyndir um verðmæti þess- ara veiðarfæra, þá má áætla að ný djúp loðnunót kosti um 22 - 23 milljónir króna og ný grunn loðnunót 16 - 17 milljónir. Þau veiðarfæri sem flokka á sem birgðir á að meta á kostnaðarverði eða dagverði, hvort sem lægra reynist. Þegar um er að ræða notuð veiðarfæri verður að meta verðmæti þeirra út frá endurkaupsverði nýrra veiðar- færa, en færa það niður með hliðsjón af notkunartíma og ástandi veiðarfæranna. Verðmæti notaðra veiðar- færa við birgðamat byggist því á mati endurskoðandans og sérfróðra aðila t.d. netagerðarmanna, útgerðarstjóra eða skipsstjórnarmanna. Svo vikið sé að mati og framsetningu loðnu- og síld- arnóta í ársreikningi þá gegnir öðru máli um þau, vegna hins langa endingartíma þeirra. Slík veiðarfæri á að færa meðal fastafjármuna í efnahagsreikningi og endur- meta og afskrifa í samræmi við endingartíma. Afskrift af nýjum shkum veiðarfærum ætti að vera mest fyrsta árið, en lægri eftir það. IV. STUTT LÝSING Á FRAMLEIÐSLUFERLI (FRYSTING): Áður en fjallað verður um birgðamat afurða í vinnslu og fullunninna afurða verður lýst í stuttu máli fram- leiðsluferli í fiskvinnslu og er þá tekið mið af frystingu. Þessi lýsing ætti að auðvelda mönnum að glöggva sig á framleiðslukostnaði í fiskvinnslu. Fiskvinnsla er að mörgu leyti mjög ólík öðrum mat- vælaiðnaði. Þessi mismunur er m.a. fólginn í því að í mörgum tilfellum getur vinnslan litlu um það ráðið hvaða hráefni hún fær til vinnslu eða hversu mikið. Slíkt ræðst af aflasamsetningu og aflamagni þeirra skipa 8

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.