Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Page 12

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Page 12
Árni Tómasson, löggiltur endurskoðandi BIRGÐAMAT í FISKELDI INNGANGUR: Fiskeldi er tiltölulega ung atvinnugrein hér á landi, en á síðustu 5 árum hefur uppbygging hennar verið mjög hröð. Ýmsir erfiðleikar hafa steðjað að greininni og þegar þetta er ritað ríkir talsverð óvissa um framtíð- arhorfur. Þegar kemur að því að segja frá afkomu og stöðu fiskeldisfyrirtækja koma upp ýmis vandamál sem ekki þekkjast úr öðrum atvinnugreinum. Eitt þessara vandamála snýr að birgðamati og er þar um að ræða margþættara viðfangsefni en í fyrstu mætti ætla. Nokkrum erfiðleikum er háð að gefa nákvæma for- skrift fyrir þeim aðferðum sem beita skal við birgðamat í fiskeldi. Ein af ástæðunum er sú, að lítinn fróðleik er að finna erlendis frá um þetta efni, fiskeldi er verulega frábrugðið og háð mun meiri óvissu en aðrar hefð- bundnar framleiðslugreinar og reynsla er mjög tak- mörkuð, bæði að því er varðar framleiðslu og markaði. Allt þetta gerir reikningshöldurum og endurskoðendum erfitt um vik við birgðamat. Grein sú sem hér fer á eftir er byggð á takmarkaðri þekkingu og reynslu greinarhöfundar af fiskeldi. Er hún í meginatriðum frásögn af þeim aðferðum sem beitt hefur verið fram til þessa, og er hugsuð sem inn- legg í þá umræðu og vonandi þróun sem á eftir að verða í þessum málum í framtíðinni. Fyrst verður gerð grein fyrir helstu tegundum afurða og birgða í laxeldi og framleiðsluferli lýst. Þá verður fjallað um talningarað- ferðir og birgðamat og rætt um helstu álitamál sem huga þarf að í því sambandi. Því næst verður fjallað um tvö sértæk vandamál þ.e. mat á klakfiski og hafbeitar- fiski og að lokum verður gerð grein fyrir framsetningu í reikningsskilum og niðurstöður dregnar saman. TEGUNDIR AFURÐA OG LÝSING Á FRAMLEIÐSLUFERLI: Við birgðamat í fiskeldi þarf að taka tillit til eftirfar- andi tegunda af afurðum og birgðum: Fóðurbirgðir Rekstrarvörubirgðir Hrogn Augnhrogn Kviðpokaseiði Startseiði Sumaralin seiði Sjógönguseiði Unglax Eldislax Klaklax Hafbeitarafurðir Fullunnar afurðir Ekki verður fjallað hér um fóðurbirgðir. rekstrarvör- ubirgðir eða fullunnar afurðir, því birgðamat þessara tegunda er í engu frábrugðið birgðamati í öðrum fram- leiðslugreinum, svo sem fiskvinnslu. Aður en hægt er að fjalla um aðferðir við birgðamat hinna tegundanna, er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir framleiðsluferl- inu. Rétt er 'að benda á að mjög erfitt er að gefa ná- kvæma forskrift fyrir ferlinu, því reynslan hefur leitt í ljós að það er mjög mismunandi milli fyrirtækja. Fjölmargir þættir spila inn í ferlið og má nefna mis- munandi laxastofna, hitastig við eldið, þéttleika í eldis- kerjum, sjúkdóma sem herja á fiskinn og margt fleira. í því yfirliti sem hér fer á eftir hefur verið leitast við að taka mið af meðaltali nokkurra stöðva. Lesendum til glöggvunar er nýfrjóvguðum hrognum fylgt eftir frá hausti 1989 þegar laxinn er kreistur, þar til hann hefur náð sláturstærð (3 kg.) þremur árum síðar. Flest hug- tökin skýra sig sjálf, en þó er rétt að benda á að talað er um „startseiði" á því skeiði frá því seiðin byrja að taka fóður, þar til þau hafa náð 1 gr. stærð. Talað er um sjó- gönguseiði, þegar seiðin hafa búist sjógöngubúningi og verða silfruð, en á því skeiði lýkur seiðaeldi í ferskvatni og við tekur laxeldi í sjó. I framhaldi af umræðu um framleiðsluferlið er nauð- synlegt að reyna að ganga einu skrefi lengra og gera sér grein fyrir fjölda einstaklinga á hverju stigi framleiðsl- unnar. Það er mjög mikilvægt við endurskoðun þessara 12

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.