Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Qupperneq 19

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Qupperneq 19
uppruni. Ef vitað er um sjúkdóma sem herja á fiskinn, gefur það vísbendingu um meiri afföll í framtíðinni, lægra söluverð og meiri tilkostnað við eldið, sem allt kallar á lægra birgðamat. Seiði verða að sjógönguseið- um einungis að vori til og verða að hafa náð ákveðinni lágmarksstærð (5-15 gr.) við áramót til þess að svo geti orðið. Birgðamat í flokki seiða 3-30 gr. getur því verið mjög mismunandi með þetta atriði í huga, því þau seiði sem ekki verða að sjógönguseiðum taka litlum framför- um í heilt ár. Að því er varðar matfiskinn hefur komið í ljós að stofnar verða kynþroska á mismunandi tíma. Pví miður hefur reynslan leitt í ljós að margir íslenskir stofnar verða að verulegum hluta kynþroska ári fyrr en æskilegt er talið, sem þýðir að dregur úr vexti og að slátra verður fiskinum um eða undir tveimur kg. Mark- aðsverð pr/kg af fiski yfir 3 kg. getur verið allt að tvö- földu miðað við smáa fiskinn. Eins og ljóst má vera af framansögðu er ógerlegt í rekstri sem þessum að ætla sér að finna nákvæmt fram- leiðslukostnaðarverð á seiði af vissri stærð eða á hvert kg. af laxi. Til þess er óvissan allt of mikil. Hægt er að nálgast framleiðslukostnaðarverð eins og lýst er í með- fylgjandi drögum að framsetningu í ársreikningi. Þá eru sérgreind tjón og birgðabreytingar dregin út úr fram- leiðslukostnaði og fundin afleidd tala „framleiðslu- kostnaður seldra afurða", sem er gagnleg til viðmiðun- ar við sölutekjur seldra afurða. Ljóst er að þessi stærð getur aldrei orðið neikvæð, þótt sölutekjur séu engar, því þá er verið að brjóta lægstaverðsregluna. Einnig er gagnlegt að skoða hlutfall þessarar stærðar af sölutekj- um, að þar sé rökrétt samhengi á milli, því óeðlilega lágt hlutfall framleiðslukostnaðar á móti sölu gefur til kynna að verið sé að leysa inn hagnað með of háu birgðamati áður en sala á sér stað. Meðfylgjandi eru hugmyndir að því hvernig fram- setning í ársreikningi og skýringar gætu litið út, þannig að samrýmist ákvæðum laga og reikningshaldsreglna. GBC-innbinding Snyrtilegur frágangur er þinn metnaður. Við bjóðum handknúnar eða rafdrifnar vélar fyrir kjölbindingu á gögnum fyrir reikningsuppgjör, fundi, ráðstefnur ofl. Efnið er liprir plastgormar eða stöðugir plastkilir. Örugg og hentug innbinding og auðveld í notkun. OTTO B. ARNAR Umboðsverslun Skipholti 9-105 Reykjavík Sími 624699

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.