Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Page 26

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Page 26
Hugtök varöandi samstæðureikningsskil. Helstu hugtök varðandi samstæðureikningsskil eru þær sem nefndar eru á ensku „parent company concept” og „entity concept” og kalla má á íslensku „móðurfélags- kenningu” og „heildarkenningu”. Báðar þessar kenn- ingar byggja á þeirri staðhæfingu að þegar félag á eitt eða fleiri dótturfélög eru samstæðureikningsskil gagn- legri fyrir hluthafa móðurfélagsins en ársreikningar ein- stakra félaga án samstæðureiknings. Þrátt fyrir þetta leiða þessar kenningar til mjög ólíkra niðurstaðna. A. Móðurfélagskenningin (Parent company concept). Móðurfélagskenningin lítur á samstæðueiknings- skil sem viðbót við reikningsskil móðurfélagsins, þar sem skipt er á fjárfestingarreikningi móðurfé- lags í dótturfélagi og einstökum eignum og skuldum sem standa á bak við fjárfestingu móðurfélagsins og litið er á dótturfélag líkt og útibú. Þegar dótturfélag er ekki að öllu leyti í eigu móðurfélagsins þá er mynduð hlutdeild minnihluta í dótturfélagi. Þessi minnihluti er álitinn standa utan félagsins og hlut- deild hans talin vera skuld í augum hluthafa móður- félagsins. Hlutdeild minnihluta er mæld sem hlut- fallsleg eign hans í eigin fé dótturfélags. Eigið fé samstæðunnar samanstendur af eigin fé móðurfé- lagsins og hlutfallslegri eign þess í eigin fé dótturfé- laganna. Mismunur milli fjárfestingar móðurfélags í dótt- urfélagi og hlutdeildar þess í bókfærðu eigin fé dótt- urfélagsins við kaup er færður á fastafjármuni ef hægt er og allur afgangur er sýndur sérstaklega í samstæðureikningi sem viðskiptavild. Slíkur mis- munur (viðskiptavild) er eingöngu talinn tilheyra móðurfélaginu og hefur ekki áhrif á hlutdeild minnihluta í dótturfélaginu. Samkvæmt móðurfélagskenningunni er aðeins hluti móðurfélagsins í milliviðskiptum milh móður- og dótturfélags felldur niður, þar sem hlutdeild minnihluta í slíkum viðskiptum er álitin vera við- skipti við aðila sem standa utan samstæðunnar. B. Heildarkenningin (Entity concept). Andstætt móðurfélagskenningunni lítur heildar- kenningin á samstæðureikningsskil sem reiknings- skil einnar efnahagslegrar einingar með tvenns kon- ar eignarhluta þ.e. meirihluta og minnihluta. Sam- kvæmt þessari kenningu eru samstæðureikningsskil ekki álitin viðbót við reikningsskil móðurfélagsins, heldur eru þau talin vera lýsing á fjárhagslegri stöðu og rekstramiðurstöðu ákveðinnar skýrt afmarkaðr- ar rekstrareiningar, sem samanstendur af nokkrum tengdum félögum þar sem tengslin byggjast á sams- kona yfirráðum (þ.e. meirihlutaeign móðurfélags í hlutafé dótturfélaga). Þegar litið er á þannig tengd félög sem hluta af einni efnahagslegri heild er hlut- deild minnihluta talin vera hluti af eigin fé samstæð- unnar, en ekki skuld við utanaðkomandi aðila. Fjárfesting móðurfélags í dótturfélagi umfram hlut- deild þess í eigin fé dótturfélagsins er notuð sem grundvöllur fyrir mati á raunverulegu virði dótturfé- lags og hlutdeild minnihluta er endurmetin til hlut- deildar hans í raunverulegu virði félagsins. Tekjur, gjöld og hagnaður er aðeins viðurkennd- ur af viðskiptum við aðila sem standa utan samstæð- unnar og á það bæði við um hlutdeild meirihluta og hlutdeild minnihluta. I Bandaríkjunum. Bretlandi og Kanada er móðurfé- lagskenningin, eins og henni hefur verið lýst hér að framan, yfirleitt notuð í reynd þótt nokkurrar fjöl- breytni gæti í vinnubrögðum, sérstaklega varðandi hagnað af viðskiptum milli félaga, ef um hlutdeild minnihluta er að ræða í dótturfélagi. í þeim dæmum sem fylgja hér á eftir er stuðst við móðurfélagskenning- una. Bókun fjárfestingar í dótturfélagi. Meginreglur við færslu í bókhaldi á fjárfestingu í dótt- urfélagi eru tvær og eru á ensku nefndar „purchase accounting” og „pooling of interest accounting” og nefna mætti á íslensku „kaupaðferð” og „samlegðarað- ferð”. A. Kaupaðferð. Samkvæmt kaupaðferðinni er litið svo á að með- höndla eigi samtengingu félaga sem kaup á eignum án tillits til þess hvemig slík samtenging á sér stað. Eignir sem félag eignast við samtengingu með því að greiða fyrir þær með peningum eru færðar í bók- haldi móðurfélagsins á því verði sem greitt er fyrir þær. Eignir sem félag eignast við samtengingu með því að gefa út hlutafé sem greiðslu eru annað hvort færðar við gangverði viðkomandi eigna eða hluta- fjárins. Val á því hvor viðmiðunin er notuð byggist á því hversu aðgengilegar upplýsingar eru um verð- mæti þessara eigna. Eftirfarandi fyrirmæli varðandi skiptingu á kostn- aðarverði fjárfestingar samkvæmt kaupaðferð voru sett fram af bandarískri reikningsskilanefnd (APB opinion no. 16): „Allar raunverulegar eignir (ident- ifiable assets) sem keyptar eru og yfirteknar skuldir við samtengingu skal færa á matsverði á kaupdegi. Það sem kann að vera greitt fyrir félag umfram matsverð eigna að frádregnum skuldum skal færa sem viðskiptavild.” B. Samlegðaraðferð. A síðari hluta fjórða áratugarins óx mjög áhugi manna í Bandaríkjunum á samlegðaraðferðinni. Vinsældir hennar byggðust á þeirri staðreynd að 26

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.