Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Qupperneq 42

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Qupperneq 42
Jón Þ. Einarsson löggiltur endurskoðandi ALÞJÓÐLEGUR REIKNINGSSKILASTAÐALL IAS 22 BÓKUN Á SAMRUNA FYRIRTÆKJA (Accounting for business combinations) INNGANGUR Þessi reikningsskilastaðall fjallar um bókun á sam- runa fyrirtækja og meðhöndlun viðskiptavildar sem kemur fram við samrunann. Aðaláherslan er lögð á reikningsskil hinna sameinuðu fyrirtækja en þó eiga sum ákvæði staðalsins við um ársreikninga einstakra fyrirtækja. Staðallinn fjallar hvorki um fjárfestingar sem eru bókaðar samkvæmt hlutdeildaraðferðinni (equity met- hod) í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðalinn nr. 3, samstæðureikningsskil (consolidated financial statements) né um viðskipti með eignir á milli tengdra félaga. AÐFERÐIR Tvær aðferðir eru viðhafðar við bókun á samruna fyrirtækja: a) Kaupaðferðin(purchase method) b) Samlegðaraðferðin(pooling of interests method) Þegar fyrrnefnda aðferðin er viðhöfð er beitt sömu að- ferðum og við bókun venjulegra eignakaupa. Allar raunverulegar eignir og skuldir hins keypta félags eru bókfærðar á gangvirði á kaupdegi. Þann hluta kaup- verðsins, sem er umfram gangvirði keypts eigin fjár, á annaðhvort að sýna sem eign í samstæðureiknings- skilum, en það er keypt viðskiptavild, eða færa strax yf- ir eigið fé. Þegar samlegðaraðferðin er viðhöfð eru eignir, skuldir, tekjur og gjöld hins sameinaða félags sýnd við sama verði og í reikningsskilum félaganna sem mynda samrunann, eins og þau hefðu haldið áfram rekstri sínum með sama hætti og áður. Samlegðarað- ferðin viðurkennir ekki viðskiptavild við kaup, og er hún notuð þegar samruninn felst í höfuðatriðum í skipt- um á atkvæðabærum hlutabréfum í félögunum frekar en greiðslu með peningum eða öðrum eignum. Hér á eftir fer þýðing mín á þessum reikningsskila- staðli: ALÞIÓÐLEGUR REIKNINGSSKILASTAÐALL NR. 22 BÓKUN Á SAMRUNA FYRIRTÆKJA Alþjóðlegur reikningsskilastaðall nr. 22 nœr yfir greinar 36-56 og skal lesa í samhengi við inngangsorð þessa staðals(greinar 1-35) og aðra alþjóðlegra reikningsskila- staðla. 36. í reikningsskilum skal gera grein fyrir samruna fyr- irtækja samkvæmt svonefndri kaupaðferð, en hún er nánar útskýrð í greinum 39-45 hér á eftir. Þetta á þó ekki við þegar samruninn telst vera sameining á hagsmunum hluthafa. 37. Samruni fyrirtækja telst þvi aðeins vera sameining á hagsmunum hluthafa ef hluthafar í hinum sam- tengdu fyrirtækjum fá áframhaldandi gagnkvæma hlutdeild í áhættu og ávinningi sem fylgja hinu sam- einaða fyrirtæki, og 42

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.