Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Side 43

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Side 43
a) samruninn felst í höfuðatriðum í skiptum á at- kvæðisbærum hlutabréfum í félögunum, og b) allir eða því sem næst allir eigna- og skuldaliðir fyrirtækjanna svo og reksturinn sjálfur, eru sam- einaðir í eina heild. 38. Þegar samruni fyrirtækja telst vera sameining á hagsmunum hluthafa er hægt að viðhafa svonefnda samlegðaraðferð sem útskýrð er í greinum 46-47 hér á eftir. KAUPAÐFERÐIN 39. Við gerð samstæðureikningsskila skal færa allar raunverulegar eignir og skuldir hins keypta fyrir- tækis á gangvirði á kaupdegi. 40. Fyrirtæki skal fara með mismun á kaupverði og gangverði raunverulegs keypts eigin fjár eftir ann- arri hvorri eftirtalinna aðferða, hvort sem mismun- urinn er jákvæður eða neikvæður: a) mismunurinn bókaður til gjalda eða tekna í samræmi við aðferðir sem greint er frá í grein- um 41 og 42, eða b) mismunurinn færður strax yfir eigið fé. Greinar 43-45 eiga við í báðum tilvikum. 41. Þegar aðferðin í grein 40(a) er viðhöfð skal sýna þá fjárhæð kaupverðsins, sem er umfram gangvirði keypts eigin fjár, sem eign í samstæðureiknings- skilum, en það er keypt viðskiptavild, og skal gjald- færa hana á kerfisbundinn hátt á þeim tíma sem hún er talin gefa af sér tekjur. 42. Ef kaupverðið er lægra en heildargangvirði keypts eigin fjár, á annaðhvort að sýna mismuninn sem frestaðar tekjur og tekjufæra á kerfisbundinn hátt, eða skipta honum á einstakar keyptar fymanlegar eignir í hlutfalli við gangvirði þeirra. 43. Eignir, aðrar en handbært fé, sem afhentar eru til greiðslu kaupverðsins, skal meta á gangvirði. 44. Þegar kaupsamningur gerir ráð fyrir leiðréttingu á kaupverðinu sem skilyrt er einum eða fleiri fram- tíðaratburðum, á hin skilyrta fjárhæð að vera inni- fahn í kaupverðinu ef líklegt er að hún verði greidd og ef hægt er að leggja skynsamlegt mat á hana. í öllum öðrum tilvikum á að bókfæra leiðréttinguna jafnskjótt og hana má ákvarða, í samræmi við ákvæði alþjóðlega reikningsskilastaðalsins nr. 10, en hann fjallar um atburði sem eiga sér stað eftir dagsetningu reikningsskila (Contingencies and Events Occurring After the Balance Sheet Date). 45. Minnihluta. sem fram kemur við samruna fyrir- tækja, á helst að sýna sem hlutfall af gangvirði eigin fjár dótturfélagsins eftir kaupin. Að öðrum kosti á að sýna hann sem hlutfall af bókfærðu eigin fé dótt- urfélagsins, fyrir kaupin. SAMLEGÐARAÐFERÐIN 46. Þegar samlegðaraðferðinni er beitt skulu reiknings- skil samstæðunnar hafa að geyma allar eignir og skuldir, hinna samtengdu fyrirtækja, svo og tekjur þeirra og gjöld á því tímabili þegar sameiningin varð og á öðrum tímabilum sem sýnd eru til saman- burðar, eins og sameiningin hefði orðið f upphafi þeirra. 47. Mismunurinn á afhentum hlutabréfum auk greiðslu með handbæru fé eða öðrum eignum annars vegar, og á bókfærðu verði keyptra hlutabréfa hinsvegar skal færður á eigið fé. MEÐHÖNDLUN TEKJUSKATTS 48. Varanlega og tímabundna mismuni á innlausn tekna og gjalda í reikningsskilum annars vegar og í skattalegu tilliti hins vegar skal meðhöndla í sam- ræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðalinn nr. 12, en hann fjallar um bókun tekjuskatts (Accounting for Taxes on Income). 49. Avinningur samstæðu af yfirfæranlegu skattalegu tapi. sem ekki var eignfært hjá hinu keypta fyrir- tæki, skal tekjufærður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðalinn nr. 12 um bókun tekju- skatts, nema yfirverð hafi verið fært yfir eigið fé samkvæmt grein 40(b) hér á undan. Ef keypt við- skiptavild er færð til eignar skal taka tillit til verð- mætis slíks ávinnings við eignfærsluna. Ef yfirverð hins vegar er fært til lækkunar eigin fjár, skal ávinningur af skattalegu tapi sæta sömu meðferð. SKÝRINGAR 50. Eftrrfarandi skýringar eiga að koma fram í fyrstu reikningsskilum sem gerð eru eftir að samruni fyr- irtækja á sér stað: a) nöfn og lýsing á hinum samtengdu fyrirtækjum b) raunveruleg dagsetning samrunans, og c) reikningshaldsaðferð sú sem notuð er til að gera grein fyrir samrunanum. Að auki þurfa að kóma fram skýringar sem krafist er í alþjóðlega reikningsskilastaðlinum nr. 3, sam- stæðureikningsskil, og alþjóðlega reikningsskila- staðlinum nr. 5, upplýsingar sem birta á í reiknings- skilum (Information to be Disclosed in Financial Statements). 51. Þegar kaupaðferðin er viðhöfð til að skýra frá sam- runa fyrirtækja, eiga eftirfarandi viðbótarskýringar að koma fram í fyrstu reikningsskilunum sem gerð eru eftir að samruninn á sér stað: a) hlutfall keyptra hlutabréfa af heildarhlutafé b) kaupverð og lýsing á því hvernig það var greitt eða hvort um skilyrtar greiðslur er að ræða. 43

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.