Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1990, Side 44
c) upphæð mismunar á kaupverði og heildargang-
verði keypts eigin fjár, meðferð mismunarins,
auk afskriftartíma viðskiptavildar sem myndast
við kaupin.
52. Þegar samlegðaraðferðinni er beitt til að skýra frá
samruna fyrirtækja, eiga eftirfarandi viðbótarskýr-
ingar að koma fram í fyrstu reikningsskilunum sem
gerð eru eftir að samruninn á sér stað:
a) lýsing á útgefnum hlutabréfum og upplýsingar
um fjölda þeirra, ásamt hlutdeild hvers félags
sem myndar samrunann í heildarhlutafé hins
sameinaða félags.
b) upphæð eigna og skulda sem lögð eru fram af
hverju félagi.
c) Sundurliðun á þeim hagnaði félaganna sem varð
áður en þau voru sameinuð, en er birtur í reikn-
ingsskilum samstæðunnar.
SAMRUNI FYRIRTÆKJA EFTIR DAGSETNINGU REIKN-
INGSSKILA
53. í reikningsskilum félags skal ekki gera grein fyrir
samruna sem það á aðild að, ef hann á sér stað eftir
dagsetningu efnahagsreiknings í reikningsskilun-
um.
54. Ef samruni félaga á sér stað eftir dagsetningu efna-
hagsreiknings en fyrir útgáfu reikningsskila ein-
hvers hinna sameinuðu félaga, skal skýra frá hon-
um ef það er notendum reikningsskilanna nauðsyn-
legt til að geta lagt haldgott mat á rekstur og stöðu
félagsins( sjá alþjóðlega reikningsskilastaðalinn nr.
10, atburðir sem eiga sér stað eftir dagsetningu
efnahagsreiknings). Skýringamar skulu taka til
þeirra atriða í greinum 50-52 hér að framan, sem
máli skipta við slíka matsgjörð eða að öðrum kosti
yfirlýsingu um að mat á afleiðingum samrunans sé
ekki gerlegt.
GILDISTÖKUDAGUR
55. Þessi alþjóðlegi reikningsskilastaðall tekur gildi fyr-
ir samruna fyrirtækja sem eiga sér stað eftir 1. jan-
úar 1985.
BREYTINGAÁKVÆÐI
56. Fyrirtæki eru hvött til að beita ákvæðum þessa
staðals um samruna fyrirtækja sem átt hafa sér stað
fyrir gildistöku hans, en þess er ekki krafist. Ef það
er ekki gert, er mælt með að viðskiptavild vegna
kaupa á félögum fyrir gildistökuna, verði með-
höndluð á eftirfarandi hátt:
a) Færð til gjalda á móti tekjum samkvæmt grein-
um 41-42, eða
b) færð strax yfir eigið fé.
KÆR KVEÐJA TIL FÉLAGA LÖGGILTRA ENDURSKOÐENDA
cuÐmunDUR mns on
SKUTUVOGI 4 — 121 REYKJAVIK — ICELAND — P O Box 385
Trönuhraun 5
220 Hafnarfjörður
Sími: 91-54745
44