FLE blaðið - 01.01.2010, Page 11

FLE blaðið - 01.01.2010, Page 11
Umræða um atriði sem máli skipta og betur mega fara Auka þarf eftir fremsta megni umfjöllun um reikningsskil og fjárhagsupplýsingar félaga á markaði, í þeirri umfjöllun er æskilegt að fram komi hve stór hluti afkomu er innleystur, einnig er mikilvægt að umfjöllun um sjóðstreymi sé gert hærra undir höfði og hún sett í samhengi við þá afkomu sem birtist í rekstrarreikningi. Til að lesandinn geti fengið traust á niðurstöðu reikningsskilanna þá þarf að gera kröfu um ítarlegri upplýsingar varðandi beitingu reikningshaldslegs mats og allra þeirra lykilstærða sem máli skipta við mat stjórnenda. Stjórnendur félaga leita oft til ytri aðila eftir aðstoð við sitt reikningshaldslega mat, t.d. virðisrýrnunarpróf, en hve ábyggileg og áreiðanleg er sú vinna? Er öruggt að viðkomandi aðilar hafi þá þekkingu og viðhafi þau gagnrýnu vinnubrögð sem skylda ber til? Er þar um að ræða sjálfstætt mat viðkomandi ytri aðila, eða felst hans vinna í útreikningum sem byggja á forsendum sem stjórnendur láta honum í té? Ætti mögulega að birta slíkar skýrslur opinberlega í tengslum við birtingu uppgjöra þar sem stuðst er við niðurstöður þeirra? Til að auka óhæði endurskoðandans og styrkja traust á áritun hans er mikilvægt að skoða af fullum hug hvort ekki sé þörf á því að endurskoðun félaga skráðra á markaði flytjist með reglubundnum hætti milli endurskoðenda og þá milli endurskoðunarstofa en ekki einstaklinga. Ýmsar hæfiskröfur eru gerðar til aðila sem sitja í stjórnum félaga. Þegar félög birta fjárhagsupplýsingar sem eru jafn háðar reikningshaldslegu mati og raun beri vitni þá ætti það að vera skýlaus krafa að innan stjórnar sé viðamikil og raunveruleg þekking á því regluverki sem reikningsskil eru unnin útfrá. Ef þá þekkingu og þann skilning skortir hjá stjórnarmönnum, hvernig geta þeir þá metið áreiðanleika þeirra reikninga sem stjórnendur vinna fyrir þá, það er jú stjórn félagsins sem staðfestir reikninginn og leggur hann fram. Þeir stjórnendur sem semja reikningsskilin eru oft á tíðum löggiltir endurskoðendur sem ætti að bera með sér að þeir þekki vel reikningsskilaregluverkið, en það er þó ekki sjálfgefið. Þeir sem og aðrir stjórnendur þurfa stöðugt að halda sinni þekkingu við og mega aldrei gleyma grunntilgangi reikningsskilanna, þ.e. hinni glöggu mynd, þrátt fyrir þann þrýsting sem oft er til staðar. Opinbert eftirlit með reikningsskilum skráðra félaga er mjög mikilvægt. Því miður þá hefur það eftirlit brugðist og slíkt er óásættanlegt nú á tímum. Hið opinbera verður að setja fjármagn í styrkingu þess eftirlits og væri fyrsta skrefið í rétta átt að láta það eftirlitsgjald sem tekið er af félögum sem beita IFRS renna til slíkrar eftirlitsstofnunar. IASB hefur brugðist við gagnrýni á IFRS staðlana með því að setja á laggirnar nýtt regluverk, IFRS fyrir lítil og meðalstór félög (SME). Þetta er jákvæð þróun og mikilvægt að FLE fylgi þessu máli vel eftir og sjái til þess að innleiðing á því regluverki hér á íslandi gangi sem best fyrir sig. Jafnframt þarf að skoða hvort ekki sé rétt að fella íslensk ársreikningalög að þessu nýja regluverki. Erling Tómasson Fyrsta konan með löggildingu - viðtal Guðríður Kristófersdóttir er löggiltur endurskoðandi hjá PwC hf. „Við vorum þrjár stelpumar sem fórum í löggildingarprófin, Karlotta, Erna Bryndís og ég. Því miður veiktist Karlotta og náði því ekki að Ijúka öllum prófunum eins og við Erna Bryndís. Á vegi Ernu Bryndísar var hins vegar önnur hindrun sem var aldurinn. Þrátt fyrir að hafa náð öllum prófunum þurfti Erna Bryndís að bíða að mig minnir í eitt ár eða þar til hún var orðin 25 ára eftir að geta fengið löggildinguna. Aldursákvæðið , þ.e. að hafa náð 25 ára aldri, var eitt af skilyrðunum fyrir að hljóta löggildingu segir Guðríður. „Þess vegna varð ég sú fyrsta, en það hefði verið gaman ef við hefðum allar þrjár fengið löggildinguna á þessum tíma" bætir hún við með svolítilli eftirsjá í röddinni. Reykjavíkurmær Guðríður er alin upp á Skólavörðuholtinu, var í Miðbæjarskólanum og fór svo þaðan í Verslunarskólann. Hún er því ekta Reykjavíkurbarn sem naut góðs af frjálsræði þessa tíma þegar börnin gátu leikið sér úti. Þá voru líka miklu fleiri börn í hverri fjölskyldu en er í dag og Þingholtin voru skemmtilegt leiksvæði. „Ég vann í fiski sem unglingur, líka í mjólkurbúð eitt sumar og upp úr því vann ég í banka. Tók svo stúdentspróf frá Versló og fór eftir það að vinna hjá endurskoðunarskrifstofu. Ég ætlaði reyndar að fara í viðskiptafræði í Háskólanum en ég hugsaði með mér að það væri allt í lagi að prufa að vinna þarna, sem varð svo til að ég sleppti alveg háskólanáminu. Skrifstofan var N. Manscher & Co. sem er forveri PricewaterhouseCoopers FLE blaðid janúar 2010 • 11

x

FLE blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.