FLE blaðið - 01.01.2010, Page 18
NRF er kjörinn til tveggja ára í senn. Á aðalfundi 2009 var
undirrituð kjörinn forseti NRF til ársins 2011. Auk aðalfunda
ár hvert hittast formenn og framkvæmdastjórar einu sinni
á ári en meginstarfsemin hvílir á herðum framkvæmdastjóra
aðildarfélaganna og framkvæmdastjóra sambandsins en þessir
aðilar halda mánaðarlega símafundi auk annarra samskipta og
funda.
Tilvist NRF er mikilvæg fyrir aðildarfélögin þar sem
hagsmunir norrænna endurskoðenda fara saman í mörgum
tilfellum enda aðstæður og uppbygging samfélagsins svipuð á
öllum Norðurlöndunum og þarfirog nálgun öll því sambærileg.
Margret G. Flóvenz
ff W '
Starfsemi FLE
AIh Sigurður B. Arnþórsson er löggiltur endurskoðandi og framkvæmdastjóri FLE
Miklar breytingar hafa orðið í starfsumhverfi FLE með tilkomu
nýrra laga um endurskoðendur sem tóku gildi í ársbyrjun 2009
og ýmsar skyldur lagðar á herðar félagsins sem því er ætlað
að sinna. í lögunum kemur fram að endurskoðendum beri að
rækja störf sín í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla
og staðla um gæðaeftirlit. Kröfur til menntunar sem
og endurmenntunar hafa verið auknar og hlutverk
Endurskoðendaráðs er orðið mun víðtækara en áður.
Allar þessar breytingar á starfsumhverfi endurskoðenda
kalla því á miklar breytingar á starfsemi félagsins og hafa
reyndar þegar gert á mörgum sviðum. Það var því ekki að
ástæðulausu sem stjórn félagsins sá ríka ástæðu til þess
að láta fara fram stefnumótunarvinnu meðal félagsmanna
haustið 2008 í þeim tilgangi að fara yfir starfsemi og skipulag
félagsins. Sterk skilaboð komu fram varðandi endurmenntun
og upplýsingaflæði til félagsmanna sem félagið hefur reynt að
bregðast við.
Eitt fyrsta verk nýrrar stjórnar í ársbyrjun 2009 var að
ráða framkvæmdastjóra í fullt starf. Á vormánuðum urðu
síðan aftur mannabreytingar á skrifstofu félagsins og var
þá ráðinn skrifstofustjóri í fullt starf. Ætlun stjórnarinnar
var sú að verkefnum yrði að hluta til létt af stjórn félagsins
og faglegt innra starf FLE yrði meira. Einnig að skapa
grundvöll til að bregðast við þeim óskum sem höfðu komið
fram í stefnumótunarvinnunni og þeim kröfum sem breytt
starfsumhverfi endurskoðenda kallar á.
Starfið framundan
Félagið hefur verið að kanna ýmsa möguleika á frekara
námskeiðahaldi og hefur það verið gert í samstarfi við
nefndir félagsins og einstaka félagsmenn. Út úr þeirri vinnu
hefur komið grunnur að námskeiðum eða morgunfundum
sem tækju á hinum ýmsu faglegu málum sem þörf væri á
hverju sinni. Þar mætti meðal annars fara yfir alþjóðlegu
endurskoðunarstaðlana með sambærilegum hætti og gert
var þegar alþjóðlegu reikningsskilastaðlarnir voru innleiddir
á sínum tíma. Fyrirhugað er að morgunkornin verði haldin
í þeim mánuðum þar sem ekki eru ráðstefnur fyrir á vegum
FLE. Þessi fræðsla verður hrein viðbót við þau námskeið og
ráðstefnur sem fastanefndirnar standa reglulega fyrir. Formið
á þessum morgunkornum verður blanda af fyrirlestrum og
verkefnavinnu. Endurskoðunarnefnd, reikningsskilanefnd og
skattanefnd munu sem fyrr standa fyrir faglegum ráðstefnum
og námskeiðum auk þess að fylgjast með og taka þátt í þróun
á þeim sviðum sem þær fjalla um og miðla upplýsingum til
félagsmanna. Þá mun félagið bregðast við ef upp koma óskir
eða þarfir um viðbótarnámskeið.
Til þess að fylgja enn frekar eftir óskum félagsmanna frá
fámennum stofum, um endurmenntun, miðlun upplýsinga
og hjálpargagna sem og frekari skoðun á Descartes hefur
framkvæmdastjóri fengið til liðs við sig tvo vaska félagsmenn
til að mynda vinnuhóp. Fllutverk hópsins er að koma með
hugmyndir að námskeiðum og hrinda í framkvæmd málefnum
sem koma þessum hópi til góða.
Eitt af því sem fjallað var um á stefnumótunarfundinum var
hagsmunagæsla og miðlun upplýsinga út á við. Haft hefur
verið samband við fjölmiðla og haldnir fundir með fulltrúum
þeirra þar sem farið varyfir hvað felst í störfum endurskoðenda,
hlutverk þeirra og ábyrgð. Einnig var starfsemi félagsins
kynnt, þeim afhent ýmis upplýsandi gögn um endurskoðendur,
og því lýst yfir að skrifstofa félagsins væri boðin og búin að
veita upplýsingar og svör ef eftir því yrði leitað. Til skoðunar
hefur verið sú hugmynd að koma á framfæri við fjölmiðla
hnitmiðuðum greinum til birtingar, þar sem fjallað væri um
hlutverk og ábyrgð endurskoðenda og þá tekin fyrir afmörkuð
efni. í þessum efnum eru það félagsmenn sjálfir fyrst og
fremst sem félagið treystir á og eru allir sem penna geta valdið
hvattir til að skrifa greinar um málefni endurskoðenda.
18 • FLE blaðiðjanúar2010