FLE blaðið - 01.01.2010, Qupperneq 19
Sigurður framkvæmdastjórí félagsins í vinnunni.
Stjórnin boðaði formenn nefnda á fund.
Þessu tengt hefur félagið hafið vinnu við að skoða og
skilgreina vefsíðu félagsins með tilliti til þess að gera meiri
greinarmun á ytri og innri vefsíðu, þannig að upplýsingar á
ytri vefnum væru ætlaðar fjölmiðlum og almenningi en innri
vefurinn væri svo sniðinn að upplýsingaþörf félagsmanna.
Afmælisárið 2010
Framundan er stórt ár hjá Félagi löggiltra endurskoðenda, því
þá verður FLE 75 ára. Það er því ærið tilefni til að blása í lúðra
og gera ýmislegt í tilefni þessara merku tímamóta. Síðastliðin
tvö til þrjú ár hefur verið starfandi afmælisnefnd á vegum
stjórnar FLE, sem hefur haft veg og vanda að undirbúningi
fyrir afmælisárið.
Þar ber hæst sú metnaðarfulla vinna sem nú er í gangi að
gefa út tvær bækur í tengslum við afmælið. Annars vegar
félagatal yfir alla endurskoðendur frá upphafi og svo hins
vegar útgáfa bókar með sögu félagsins. Félagið hefur gert
verksamninga við tvo aðila sem vinna að þessum ritsmíðum
og er fyrirhugað að félagatalið komi út næsta haust, en saga
félagsins vorið 2011. Það er skoðun stjórnar félagsins að hér
sé á ferðinni þarft verk, enda verið að skrá sögu félagsins með
markvissum hætti. Ef ekki væri ráðist í þetta stórvirki núna eru
líkur á því að þeir félagar sem þekkja upphafsárin best hverfi
frá okkur með ósagða söguna.
En það er fleira sem stendur til tengt afmælinu. Afmælis-
dagurinn er 16. júlí og það á föstudegi og er þegar búið að taka
frá Hótel Borg fyrir afmælisboðið sem verður með hefðbundnu
sniði, afmæliskaffi og köku. Efnt verður til afar veglegrar
afmælisráðstefnu þann 24. september þar sem mörgum
mætum gestum verður boðið. Að ráðstefnunni lokinni verður
svo haldið afmælishóf með léttu sniði. Reikningsskiladagurinn
sem vanalega er haldinn í september, verður felldur niður sem
slíkur en ætlunin er að taka inn á Haustráðstefnuna efni tengt
reikningsskilum.
Erlent samstarf
FLE hefur að vanda átt mikið og gott samstarf við systrafélög
sín á Norðurlöndum. Eitt af verkefnum framkvæmdastjóra er
að fylgja eftir erlendu samstarfi og hefur hann átt fundi með
öllum framkvæmdastjórum Norðurlandanna, á ferðum sínum
vegna samstarfs innan NRF. Á þeim fundum hafa komið
fram áhugaverðar upplýsingar um starfsemi og uppbyggingu
systrafélaga FLE sem eru afar gagnlegar og koma til með að
nýtast við eflingu á starfsemi félagsins okkar.
NRF samstarfið er mikilvægt fyrir FLE en þar eru haldnir
mánaðarlegir símafundir og jafnframt hittast framkvæmdastjórar
og formenn reglulega. Á síðastliðnu ári starfaði rýnihópur innan
NRF sem gerði könnun á þörfum lítilla og meðalstórra fyrirtækja
fyrir þjónustu endurskoðenda í víðum skilningi. í hverju landi
voru tekin viðtöl við fulltrúa fjármálastofnana, til að kanna
hvaða kröfur þeir gerðu um staðfestingar endurskoðenda á
fjárhagslegar upplýsingar, og jafnframt voru sendar fyrirspurnir
til valinna fyrirtækja til að kanna hvaða þjónustu þau hefðu þörf
fyrir. Hér heima var þessi könnun unnin af skrifstofu félagsins í
samstarfi við Endurskoðunarnefnd FLE.
Áfanganiðurstaða þessarar könnunar var nýlega kynnt á
ársfundi NRF og jafnframt ákveðið að rýnihópurinn héldi áfram
störfum og gerði könnun á þörfum um einföldun á regluverki
fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Jafnframt er verið að skoða
hvort IFRS fyrir SME, lítil og meðalstór fyrirtæki, sé ákveðin
lausn varðandi reikningsskil eða hvort þaö eigi almennt að
einfalda reikningsskil lítilla félaga enn frekar.
Samstarf FLE innan NRF gerir það að verkum að rödd
félagsins heyrist bæði innan FEE og IFAC. Við megum líka
vera stolt af því að okkur er treyst fyrir mikilvægum verkefnum
í þessu samstarfi, sem sést meðal annars á því að Margret
Flóvenz hefur nú verið kosin forseti NRF til næstu tveggja ára og
ekki síður að Kristrún Ingólfsdóttir hefur verið endurkjörin sem
fulltrúi NRF til næstu þriggja ára í menntunarnefnd IFAC. Mikil
og hörð samkeppni er meðal aðildarfélaga IFAC um að koma
sínum fulltrúum að í hinar ýmsu nefndir innan sambandsins.
Félagsmenn geta því verið stoltir af því að það skuli einmitt
vera félagsmaður FLE sem nýtur svo mikils trausts.
Staða endurskoðenda
Það er ekki ofsögum sagt að síðastliðið ár hafi verið
viðburðarríkt. Hið mikla efnahagshrun, sem orðið hefur um
víða veröld, hafði víðtæk áhrif hér á landi, svo mikil að jafnvel
mætti halda því fram að fjármálakreppan risti dýpra hér en víða
annars staðar. Umfjöllun um endurskoðendur og störf þeirra
FLE blaðið janúar 2010 • 19