FLE blaðið - 01.01.2010, Blaðsíða 23

FLE blaðið - 01.01.2010, Blaðsíða 23
Frá aðalfundi félagsins Hefðbundin aðalfundarstörf. Fundurinn var haldinn í Ketilshúsinu á Akureyri í beinu framhaldi af haustráðstefnu félagsins. Á fundinn mættu um 90 endurskoðendur. Fundurinn hófst á því að Kristrún H. Ingólfsdóttir fulltrúi NRF í menntunarnefnd IFAC, fór yfir kröfur alþjóðlegra staðla um faglega þróun endurskoðenda að lokinni löggildingu. Þá fjallaði hún um breytingu á lögum um endurmenntun endurskoðenda og túlkun á kröfum þeirra. Að loknu erindi Kristrúnar hófust venjubundin aðalfundarstörf með því að Margret G. Flóvenz, formaður félagsins, setti fundinn. Auður Ósk Þórisdóttir, endurskoðandi hjá KPMG var kosin fundarstjóri og Sveinbjörn Sveinbjörnsson ritaði fundargerð. Fyrstur kom í ræðustól Sigurður B. Arnþórsson, sem flutti skýrslu framkvæmdastjóra um starfsemi félagsins en útdrátt úr skýrslunni má sjá hér að framan. Síðan flutti Margret G. Flóvenz skýrslu stjórnar sem nálgast má á innri vef FLE. Þá var ársreikningur félagsins lagður fram og samþykktur. Að því loknu var farið yfir skýrslur fastanefnda sem allar eru birtar í ársreikningi félagsins. Tvær tillögur um breytingar á samþykktum félagsins voru bornar upp. Þær voru minni háttar orðalagsbreytingar og voru samþykktar. Þá var gengið til kosninga og var Þórir Ólafsson kosinn formaður og Sigurður Páll Hauksson varaformaður. Anna Þórðardóttir var kosin meðstjórnandi til tveggja ára og Jóhann Unnsteinsson til eins árs. Uppstillingarnefnd hafði lagt fram tillögur um nýtt fólk í nefndir og var það samþykkt mótatkvæðalaust. Árstillag félaga kr. 90.000 var borið upp og samþykkt án umræðu. Aðalfundi lauk svo með því að undir liðnum önnur mál voru nýjar siðareglur endurskoðenda bornar upp og samþykktar. Þórir nýkjörinn formaður ræðir við Sigurð framkvæmdastjóra. Margret G. Fióvenz fráfarandi formaður FLE. FLE blaðið janúar 2010 *23

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.