FLE blaðið - 01.01.2013, Page 7
Áhugasamir nemar á spjallstofu - Ásbjörn Björnsson spjallar um skattamál
hann gerður mun aðgengilegri og opnari fyrir félagsmenn
hvað varðar innskráningu endurmenntunar. Þar verður höfð
að leiðarljósi sú staðreynd að félagsmenn bera sjálfir ábyrgð
á endurmenntun sinni, en félagsins er að halda námskeið og
ráðstefnur sem fullnægja endurmenntunarkröfum laganna og í
samræmi við óskir félagsmanna. Félagið mun eins og hingað til
veita félagsmönnum þá þjónustu að halda utan um alla þeirra
endurmenntun, hvort sem er á vettvangi FLE eða þriðja aðila,
enda ber félaginu að halda skrá yfir endurmenntun og senda
Endurskoðendaráði, í samræmi við reglugerð þar um.
Nemaaðild
Það sögulega skref var stigið á aðalfundi fyrir um ári síðan, að
opna félagið fyrir nemum í endurskoðun. í framhaldi af því var
boðað til kynningarfunda með nemum og þeim boðin aðild að
félaginu. Jafnframt var stofnaður samráðshópur úr þeirra hópi
til þess að vera vettvangur fyrir félagið til að ræða óskir þeirra
og væntingar með félagsaðild. Fyrir utan að standa fyrir yfirferð
löggildingarprófa þá var tekin upp sú nýbreytni að halda sér-
stakt námskeið þar sem farið var yfir ýmis praktísk atriði varð-
andi undirbúning fyrir löggildingarprófið sjálft og var það opið
fyrir alla. Á þetta námskeið mættu um 30 endurskoðunarnemar
og þótti það takast vel. Síðastliðið haust stóð félagið síðan
fyrir svokölluðum spjallstofum fyrir þá endurskoðunarnema
sem eru félagsmenn í FLE. Haldnar voru þrjár slíkar stofur í
húsakynnum félagsins þeim að kostnaðarlausu og skapaðist
þar vettvangur fyrir góðar umræður, en fulltrúar fagnefnda
mættu á spjallstofurnar. Mikil ánægja var meðal nema með
þennan vettvang til skoðanaskipta og standa væntingarfélags-
ins til þess að áframhald verði á þessu fyrirkomulagi.
Ýmis verkefni
Siðaefndin hefur verið að vinna að „vegvísi fyrir kaupendur
endurskoðunarþjónustu". Þar er fjallað almennt um störf
endurskoðenda, ákvæði laga sem horfa ber til við ráðningu
endurskoðanda, skilgreiningar á tegundum útboða, útboðs-
leiðbeiningar og sýnishorn af dæmigerðum útboðsgögnum og
vinnuskjölum svo eitthvað sé nefnt. Stefnir nefndin að því að
vegvísirinn verði aðgengilegur á heimasíðu félagsins í byrjun
árs 2013.
Gæðaeftirlitið sem FLE annast í umboði Endurskoðunarráðs,
fór af stað nú í september eða um tveim mánuðum fyrr en
vanalega og gerir félagið sér vonir um að það verði til bóta
bæði fyrir þá sem sæta eftirliti sem og þá sem annast fram-
kvæmdina.
Stjórn FLE hefur ákveðið að gera gagngerar breytingar á
heimasíðu félagsins og innri síðu félagsmanna. Sú vinna er
þegar hafin, þar sem að koma Kynningarnefnd félagsins og
starfsmenn þess ásamt sérfræðingum í vefsíðugerð. Mun nýr
vefur sjá dagsins Ijós um áramót 2012-13.
Mikilvægur liður í starfsemi félagsins er að taka þátt á þeim
samstarfsvettvangi sem fer fram innan NRF og FEE. Þar hafa
framkvæmdastjóri og formaður félagsins fylgst með breyt-
ingum til framtfðar í starfsumhverfi okkar og hlutast til um [
að koma þeim upplýsingum á framfæri innan félagsins m.a.
með því að fá þá einstaklinga sem gæta hagsmuna endurskoð-
enda innan alþjóðlegra samtaka til að koma á ráðstefnur FLE
og flytja okkur erindi um þau málefni sem brenna heitast þá
stundina. Þetta hefur einnig opnað aðgengi að fjölmiðlun og
verið grundvöllur að betri umræðu um málefni endurskoðenda.
Þessi vettvangur hefur ekki síður gefið okkur styrkari grundvöll
í samskiptum félagsins við stjórnvöld og eftirlitsaðila hér á landi
og veitt okkur möguleika á að koma á framfæri ýmsum mikil-
vægum upplýsingum og gögnum sem við fáum frá erlendum
samstarfsaðilum.
Að lokum
Ég vil að lokum þakka öllum nefndum og stjórn félagsins
fyrir afar ánægjulegt og mikilvægt samstarf á liðnu starfsári.
Sérstaklega vil ég þakka formanni félagsins og formönnum
nefnda fyrir samstarfið.
Sigurður B. Arnþórsson
FLE blaðið janúar2013 • 5