FLE blaðið - 01.01.2013, Qupperneq 19

FLE blaðið - 01.01.2013, Qupperneq 19
Félagsmenn erlendis Guðmundur Magnason íKanada Þannig er mál með vexti að ég er fæddur í Montreal í franska hluta Kanada og síðar uppalinn á heimalandinu íslandi. Það var ávallt í undirmeðvitundinni að fara yfir hafið og sjá fæðingar- staðinn einhvern tíma. Árin liðu og eftir skólaárin, stofnun fjöl- skyldu og að fenginni löggildingu, varð að taka ákvörðun, nú eða aldrei. Ekki varð úr að við færum til „litlu Parísar" að þessu sinni. Samkvæmt umsögnum góðra manna var Albertafylki I miklum uppgangi, fullt af tækifærum. Lokaákvörðunin var tekin og Calgary borg I „villta vestrinu" varð fyrir valinu. Upphaflega var ætlunin að dvelja hér I tvö ár eða svo til að kynnast nýrri menningu og kannski víkka svolítið sjóndeildarhringinn. Þessi tveggja ára ævintýraför er nú komin á fjórða áratuginn. Fyrstu dagarnir I Calgary voru að vetri til. Ég ráfaði um aðal- götur miðborgarinnar til að heimsækja endurskoðunarfyrirtæki I yfir 30 stiga gaddi með íslenska lambaskinnshúfu, í þykkum Zivago frakka og vafði góðum trefli um andlitið. Hárin frusu óþægilega í nasaholunum við andardráttinn. Þetta var heldur ekki góður tími til að sækja um vinnu hjá endurskoðendafyrir- tækjum. Mér var tjáð eftir viðtöl við nokkur af helstu stofunum að ráðningar færu jafnan fram í ágúst-september. Eftir nokkra þrákelkni og þolgæði náði ég betri tengslum við eina af stóru Þrjár kynslóðir í Kanada stofunum. Viðtölin urðu þrjú. Ég las á milli línanna „hvað veit þessi strákurfrá íslandi um endurskoðun og reikningsskil"? Ég var með gott veganesti frá lærimeisturum mínum á íslandi og gat sannfært viðmælendur um að ég hefði verið viðriðinn mörg góð og fjölbreytt verkefni þarna uppi á norðurhvelinu. Einnig var mér tjáð I síðasta viðtalinu að firmað legði mikla áherslu á óhæði. „Vissulega" sagði ég „kjörorðin hjá mínu félagi eru, að það er ekki nóg að vera óháður í reynd, endurskoðandi verður að vera óháður I ásýnd". Við þetta fékk ég traust handaband og stuttu síðar staðfest tilboð með bréfboða. Miðbærinn í Calgary Skrifstofur firmans voru glæsilegar á tveimur hæðum í háhýsi í miðborginni með útsýni í allar áttir þ.á.m. Klettafjöllin í vestri, þakin snjóbreiðum eins og augað eygði, frá norðri til suðurs. Mér varð þegar Ijóst eftir nokkur verkefni, að hjá þessu ágæta fyrirtæki var fagmennska og þjónusta fyrir viðskiptavini í háveg- um höfð. Hérna störfuðu vel á annað hundruð manns I ýmsum sérhæfðum deildum. Til að byrja með voru verkefnin aðallega fyrir einkafyrirtæki, hér stundum nefnd „small business", en reyndin var þó oft önnur. Síðar starfaði ég við endurskoðunardeildina fyrir olíuiðnaðinn. Þessi iðnaður var nýr heimur þar sem sérhæfing gildir hjá öllum fagstéttum, endurskoðendum, lögfræðingum, jarð- og jarð- eðlisfræðingum svo dæmi séu nefnd. Einnig gilda margar sér- reglur í skattalögum fyrir þennan iðnað. Eftir liðlega áratug varð ég var við starfsleiða, sama rútínan og á stundum var yfirvinna mikil. Svo varð úr að ég fylgdi mörg- um starfsbræðrum sem fóru út til fyrirtækjanna. Það var mun algengara hér en heima á sínum tíma. Um eða yfir 50% leituðu til fyrirtækjanna og margir hverjir strax við löggildingu. Ég fékk >• FLE blaðiðjanúar2013 • 17

x

FLE blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.