FLE blaðið - 01.01.2013, Side 21

FLE blaðið - 01.01.2013, Side 21
Félagsmenn erlendis Ómar Gunnar Ómarsson í Svíþjóð I dag erum viö fjölskyldan búsett í Lundi í Svíþjóð, en við komum hingað út um mitt ár 2010 og hefur okkur líkað afskap- lega vel. Ástæða þess að fjölskyldan fór erlendis var sú að kona mín sérhæfir sig sem svæfingarlæknir. Planið mitt var ekki eins niðurneglt og hjá konunni, en það virðist oft vera þannig með maka lækna sem fara erlendis. Ég var þó ákveðinn í upphafi að þetta ævintýri okkar ætlaði ég að nýta mér. Nýkominn af Dale Carnegie námskeiði hjá Deloitte setti ég markmiðasetningar strax i gang. Ég hafði unnið á endurskoð- unarskrifstofu á íslandi i tæp átta ár og þó ég hafi ekki verið viss á þeim tíma, þá reyndi ég að telja mér trú um það að það væri hægt að gera eitthvað annað í lífinu. Ég setti niður á blað hjá mér þrjú atriði sem ég ætlaði að ná fram og geta tékkað við þegar ég kæmi heim. Þessi þrjú atriði sem ég setti á blað voru að læra sænskuna, fá starfsreynslu erlendis og nýta þennan tíma til að læra aðeins meira. Ómar Gunnar með Bryndísi Huldu í Svíþjóð Til að ná mér í fyrsta x-ið á tékklistann skellti ég mér í strangt sænskunám. Burtséð frá Dale Carnegie markmiðasetningu minni, taldi ég mikilvægt að taka sænskuna strax föstum tökum til að skilja Svíana í framhaldinu. Ég komst þó að því að það þarf meira en sænskunámskeið til að skilja Svíana. Ekki aðeins vegna þess að Svíarnir séu nokkuð sér á báti þá er skánskan (mállýska) hér í suður-Svíþjóð ekki fyrir nokkurn mann að skilja. En þökk sé góðu sænskunámi og miklum lestri get ég sett gott x f tékklistann við sænskukunnáttu. Ómar Gunnar í faðmi fjölskyldunnar Kross tvö I tékklistann kom ekki að himnum ofan. Skapaðist það helst að því að það er ekki þannig hér á Lundar-Malmö svæðinu að atvinnuboðum rigni inn um bréfalúguna. Hér er atvinnuleysi mikið og ég held að það sé nánast tvöfalt á við það sem gerist á íslandi, þrátt fyrir að Jóhanna og Steingrímur komi þar hvergi nálægt. En volæði og leiðindi er eitthvað sem ég forðast almennt og í vor leitaði ég til Noregs eftir atvinnu, því krossinn við atvinnureynslu erlendis skyldi koma. Það var allt annað hljóð í Norðmönnum, því umsókn mín var varla komin til Noregs þegar ég var kominn með atvinnutilboð frá Deloitte i Stavanger. Ég tók þessu góða atvinnuboði og núna vinn ég á endurskoðunarsviði Deloitte í Stavanger, þar sem áhersla er lögð á bankastarfsemi og önnur fyrirtæki sem gera upp samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum. Einnig hef ég dottið inn í önnur verkefni sem snúa að fyrirtækjum í olíu- geiranum, en hér snýst allt um olíu og ekki óeðlilegt að Stavanger sé kallað Dubai norðursins. Kross tvö er því á góðri leið á blaðið góða. Síðasti krossinn var svo að setjast aðeins meira á skólabekk. Það er alveg klárt að búandi í Lundi þá má ég nú varla koma heim með minna en tvær háskólagráður, veit um einn sem kom heim með fimm (Georg Bjarnfreðarson). Fyrsta skrefið var að ná mér í mastersgráðu í reikningsskilum og endurskoðun. Öllum námskeiðum í mastersnáminu er nú lokið, en þessa dagana er ég að klára mastersritgerðina mína sem snýr að rannsókn á ráðningu endurskoðanda að undangengnu útboði. í framhaldinu er stefnan sett á seinni háskólagráðuna til að klára síðasta Dale Carnegie krossinn og koma mér heim. ► FLE blaðiðjanúar2013 • 19

x

FLE blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.