FLE blaðið - 01.01.2013, Qupperneq 25

FLE blaðið - 01.01.2013, Qupperneq 25
Reikningsár fyrirtækja ættu að vera mismunandi Jón Rafn Ragnarsson er löggiltur endurskoðandi hjá Deloitte ehf. 9 y Laugardaginn 20. janúar 1979 birtist viðtal við þáverandi for- mann Félags löggiltra endurskoðenda, Ólaf Nilsson, á viðskipta- síðu Morgunblaðsins enda var tími reikningsskilanna að ganga I garð og því ekki úr vegi að fjalla um málefni endurskoðenda. í viðtalinu sagði Ólafur m.a.: „Ljóst er að vinnuálagið á þessa stétt er mjög mikið á vissum árstímum og æskilegt að því yrði dreift jafnar yfir árið t.d. með því að hafa annað reikningsár hjá fyrirtækjum en almanaksárið". Á viðskiptasíðu Morgunblaðsins ( mars 1991 er viðtal við Ernu Bryndísi Halldórsdóttur endurskoðanda og hún spurð hvaða breytingu hún vilji aðallega gera hjá endurskoðendum og svarar hún að það sé t.d. mjög erfitt að reka endurskoðunarstofu vegna þess að álagið sé svo miklu meira frá janúar til júní en seinni hluta ársins og það geri allt starfsmannahald erfitt. Hún bætir við að það sé sorglegt hvernig maður hverfur úr lífinu og öllu á þessu tímabili. Maður missir af svo miklu í kringum sig. Ef hún vildi t.d. taka þátt í einhverjum félagsstörfum dettur hún sjálfkrafa út fyrri hluta ársins og síðan koma sumarfrí og eftir það eru aðeins nokkrir mánuðir eftir af árinu. Þeir sem vinna við endurskoðun vita að starfsumhverfið hefur breyst mikið síðan 1979, árið sem undirritaður fæddist og framangreint viðtal var tekið við Ólaf Nilsson. Við hefur tekið mikil tölvu- og tæknivæðing, innleiðing alþjóðlegra endur- skoðunarstaðla, alþjóðlegra reikningsskilastaðla, ítarlegri formleg skráning vinnupappíra o.fl. Það sem hefur hins vegar lítið breyst er hið mikla álag sem fylgir hinum dimmu fyrstu mánuðum ársins, þegar endurskoðendur vinna myrkranna á milli. Tilgangur þessarar greinar er þó ekki að vekja athygli á að reikningsár fyrirtækja ættu að vera mismunandi til þess að endurskoðendur geti átt meiri frítíma til að sinna öðrum hugð- arefnum fyrstu mánuði ársins. Staðreyndin er hins vegar sú að ársreikningagerð er upplýsingaleikur og með henni er verið að segja sögu. í sumum tilvikum er starfsemi fyrirtækis þannig að hún er stöðug allt árið um kring og ekki skiptir þá öllu máli þótt tekin sé staða í lok desember, lok mars, lok júlí eða september. Við aðrar aðstæður er fyrirtæki í miðri á í sinni starfsemi þegar flugeldum er skotið á loft við áramót. Gott dæmi um slíkt er t.d. íþróttafélög sem starfa að vetri til, enda er það svo að knatt- spyrnuveldi eins og t.d. Manchester United og Glasgow Celtic nota reikningsárið frá 1. júlí til 30. júní enda eru tekjusamningar fyrir auglýsendur og kostnaðarsamningar við leikmenn gerðir fyrir það tímabil. Áætlanir eru gerðar miðað við tímabilið og því eðlilegt að gera upp reikningsárið miðað við sama tfma, en ekki við lok almanaksársins. Þetta þekki ég af eigin raun með stjórnarsetu fyrir handknattleiksfélag sem gerir upp miðað við áramót. Það er mjög sérstakt að setjast niður og skrifa skýrslu stjórnar og rekja málefni fyrra tímabilsins sem er öllum gleymt sem síðari hluti keppnistímabilsins á undan og síðan fjalla um upphaf þess næsta sem er fyrri hluti yfirstandandi keppnis- tímabils. f áðurnefndu viðtali við Ernu Bryndísi frá 1991 nefnir hún að ríkið og sveitarfélög ættu að hefja reikningsár miðað við 1. september sem hentar miklu betur þeirra starfsemi m.a. vegna þess að þá hefst skólaárið, gatna- og vegagerð og sum- arleyfum lýkur á þessum tíma. Þingið hefur störf og fjárlögin gætu þá verið tilbúin á vorin vegna rekstrarársins, sem hefst um haustið. Áramótin skera hins vegar allan þennan rekstur í sundur á miðju tímabili þannig að skýrslugjöfin inniheldur alltaf fyrri hluta og seinni hluta rekstrartímabils en aldrei samfellt rekstrartímabil. Þannig er þessu einnig farið hjá mörgum fyrirtækjum, þ.e. að reikningsárið sker í sundur starfsemi þeirra á miðju tímabili. Um aldamótin var nokkuð um það að útgerðarfélög gerðu reikningsskil sín miðað við kvótaárið í stað almanaksársins t.d. Vinnustöðin hf„ Fiskiðjusamlag Húsasvíkur, o.fl. Eftir nokkur ár breyttu þau flest þó aftur til baka í almanaksárið og sennilega er skýringin sú að með stækkun á virkum verðbréfamarkaði eftir aldamótin var það talið fyrirtækjum til trafala á þeim markaði að vera með annað reikningsár en almanaksárið vegna saman- burðar o.fl. Ölgerðin breytir um reikningsár í janúar 2011 dæmdi Hæstiréttur ríkinu í vil í máli nr. 212/2010 sem var Ölgerð Egils Skallagrímssonar ehf. gegn íslenska ríkinu. í málinu gerði Ölgerðin kröfu um að úrskurður Ríkisskattstjóra um synjun á beiðni um breytingu reikningsárs- ins yrði ógiltur. Ölgerðin hafði óskað eftir því að rekstrarárið yrði frá 1. mars til loka febrúar ár hvert. Ríkisskattstjóri synjaði beiðni Ölgerðarinnar á þeim grundvelli að Ölgerðin uppfyllti ekki skilyrði til að fá undanþáguna en þau voru sett fram f ákvarðandi bréfi nr. 3/2004. Ákvarðandi bréf nr. 3/2004 setur miklar skorður við því að reikn- ingsári sé breytt enda verulegir hagsmunir skattyfirvalda og annarra af því að samræmi sé á því hvaða tekjutímabil uppgjör skatta og skattaðila miðist við. Flest þau kerfi sem notuð eru við skattvinnslu eru miðuð við almanaksárið og öll frávik frá því leiða til aukins umstangs og kostnaðar. Vinna við skattlagningu byggir mikið á upplýsingamiðlun og samanburði upplýsinga frá ýmsum aðilum og er því mikilvægt að upplýsingarnar mið- FLE blaðið janúar2013 • 23

x

FLE blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.