FLE blaðið - 01.01.2013, Side 32

FLE blaðið - 01.01.2013, Side 32
Athyglisvert er samt aö 88% kvennanna og 64% karlanna sjá sig sem stjórnendur í framtíðinni. Það er því hægt að álykta sem svo að hluti kvenna sjái löggildingu til endurskoðunarstarfa sem leið til að losna undan árstíðabundnu vinnuálagi í starfi og leið út úr fyrirtækinu inn í stjórnunarstarf annarsstaðar í viðskiptalífinu. Kynjamunur var greinilegur þegar álag og fjölskylda voru skoðuð. Rúmlega helmingur kvenna telur að barneignir sé hindrun á vegi þeirra í að verða löggiltir endurskoðendur en einungis 30% karla. Þetta er sérstaklega athyglisvert þegar litið er til þess að margir karlar nota fæðingarorlof stn til próflestrar, en konur gera það í minna mæli en þeir. Báðir hóparnir bera kennsl á það álag sem próftakan er en konur í meira mæli en karlar. Helmingur kvenna telur álagið of mikið fyrir fjölskylduna, en ætla að láta það yfir sig ganga, á meðan karlarnir virðast staðráðnir í því að leiða það hjá sér og einungis 8% þeirra segja að álagið sé of mikið á fjöl- skylduna. Athyglisvert er að allar konur meta það svo að álagið vegna undirbúnings og próftökunnar sé meira á fjölskylduna en á þær sjálfar. Þegar kafað var dýpra niður í könnuninni kom í Ijós afgerandi munur á milli kynja þegar skoðað var hversu sammála eða ósam- mála svarendur voru eftirfarandi fullyrðingum: „Ég vil vera 100% viss um að ná prófinu áður en ég fer í það" og „Mér finnst óþægilegt ef það fréttist að ég hafi fallið á löggildingarprófinu". Konur virðast kröfuharðari á sjálfar sig, vilja hafa belti og axla- bönd áður en farið er í prófið, og fannst það mun óþægilegra en körlum ef það fréttist af falli á prófinu. Þá kom í Ijós að mikil- vægt er í ráðningarferlinu að spyrja út í fyrirætlanir fólks með tilliti til löggildingar. Þeir sem spurðir voru um slíkt við ráðningu voru líklegri en hinir til að fara f prófin. Úr hverju er glerþakið búið til? Ýmislegt fleira áhugavert kom fram í könnuninni, en að öllu samandregnu er Ijóst að hið svokallaða glerþak hjá okkur er búið til úr þremur þáttum: • Viðhorfi kvenna sjálfra til próftökunnar • Viðhorfi kvenna til fjölskylduábyrgðar • Skorti á hvatningu og stuðningi vinnustaðarins Og hvað svo? Til að bregðast við gerðum við ýmislegt meira, betur og öðruvísi en áður. • Við héldum rýnihópa- og hugarflugsfundi með nýútskrif- uðum löggiltum endurskoðendum, kvenkyns endurskoð- endum og með konum sem voru á leið í prófin til að skýra myndina enn betur • Við kynntum niðurstöður könnunar fyrir meðeigendum og öllum starfsmönnum til að setja málið rækilega á dagskrá • Við settum á laggirnar samþykktarferli fyrir stuðningi fyrir- tækisins, þannig að stuðningur okkar er skilyrtur við að meðeigendur telji fólkið tilbúið ( prófið, svo að konur séu ekki að fara óundirbúnar í prófið og fari svo aldrei aftur • Við jukum fjárhagslegan stuðning Deloitte og lengdum launað upplestarfrí til að létta undir með fólki og gerum núna skriflegan samning um stuðning Deloitte og starfs- tfma að ferlinu loknu • Við hættum að tala um löggildingarprófin sem „eins-skipt- is-atburð" og fórum að tala um „löggildingarferlið" til að minnka fókusinn á að „ná prófi" eða „falla á prófi" • Við ráðningu er fólk spurt um fyrirætlanir sínar til að setja málið á dagskrá við upphaf starfs • Við kynnum ferlið frá ráðningu til löggildingar á nýliðanám- skeiðum og fáum kvenkyns löggiltan endurskoðanda til að segja frá þýðingu löggildingar fyrir sig persónulega • Við tölum um undirbúning fyrir próftökuna í árlegum frammistöðuviðtölum og lengjum þannig meðgöngu- og undirbúningstímann fyrir prófin • Við gerðum námsgögn aðgengilegri til að nýta fengna reynslu og auðvelda námsskipulag • Við fengum nýútskrifaða löggilta endurskoðendur til að leggja meira af mörkum við að aðstoða og leiðbeina, m.a. með því að fara yfir eldri próf og vera bakland og leiðbein- endur fyrir næstu próftaka • Við gerðum tilraun með að bjóða mökum próftaka til fundar við okkur, þar sem við gerðum ferlinu skil, fengum kven- kyns og karlkyns maka löggiltra endurskoðenda til að lýsa sínu sjónarhorni og gefa góð ráð • Við settum á laggirnar sameiginlega námsaðstöðu fyrir próftaka í upplestrarfríinu • Við höldum sex vinnustofur fyrir próftaka, þar sem með- eigendur og löggiltir endurskoðendur og sérfræðingar á ákveðnum sviðum koma til skrafs og ráðagerða • Við höldum upphafsfund með próftökum hvers árs til að hópurinn hittist og vinni saman Við höldum líka fund með konunum eftir að niðurstöður prófanna koma til að stappa í þær stálinu og hvetja til dáða og segja þeim að núna sé ferlið hafið, fyrsti áfanginn búinn, og núna þurfi að búa sig undir næsta sprett að ári liðnu. Hverju hefur þetta skilað? Aðgerðirnar hafa skilað okkur árangri. Þær hafa ekki bara verið til hagsbóta fyrir konur heldur hafa karlarnir líka notið góðs af þeim aðgerðum sem við gripum til. Árið 2011 fóru fleiri konur í löggildingarpróf frá Deloitte en áður og árið 2012 fóru fleiri konur en karlar í löggildingarpróf í fyrsta skipti í sögu fyrirtækis- ins. Árangurinn er gleðilegur, þrfr starfsmenn okkar eru meðal þeirra átta sem standast prófin í ár, þar af tvær konur og einn karl. Mun þetta vera í fyrsta skipti í sögu okkar sem konurnar eru fleiri en karlarnir bæði f röðum próftaka og þeirra sem ná árangri. Ef eitthvað er að marka tölfræði og fjölda þeirra kvenna sem ætla sér að hefja löggildingarferlið á næstu árum væntum við þess að konum með löggildingu til endurskoðunarstarfa fjölgi jafnt og þétt í okkar röðum. Það myndi gleðja okkur öll sem störfum hjá Deloitte ehf. Erna Arnardóttir 30 • FLE blaðiðjanúar2013

x

FLE blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.