FLE blaðið - 01.01.2016, Blaðsíða 23
Vangaveltur um Reikningsskilaráð
Signý Magnúsdóttir, endurskoðandi og
Helgi Einar Karlsson, verkefnastjóri - bæði hjá Deloitte
Árið 1991 var sérstakt reikningsskilaráð sett á laggirnar með
breytingum á lögum um bókhald. Ráðinu var ætlað að stuðla
að mótun góðrar reikningsskilavenju með útgáfu og kynningu
samræmdra reglna, sem farið skyldi eftir við gerð reiknings-
skila sem og að gefa álit á því hvað teldist til góðrar reiknings-
skilavenju á hverjum tíma.
Árið 1994 komu svo út lög um ársreikninga og var í þeim að
finna vísan til reikningsskilaráðsins. Helsta ástæða þess að
reikningsskilaráð var stofnað var sú að það þótti vanta aðila
sem hafði vald til þess að setja fram álit um góða reiknings-
skilavenju þar sem löggjöfin skyldi eftir töluvert svigrúm til
túlkunar við gerð reikningsskila. Auknar leiðbeiningar reiknings-
skilaráðs áttu því að stuðla að meiri samræmingu í reiknings-
haldslegri meðferð, sem myndi auka notagildi reikningsskila
fyrir hagsmunaaðila þeirra.
Reikningsskilaráð var starfandi frá árinu 1991 til ársins 2003
(engar heimildir um starfsemi þess eftir þann tíma fundust við
skrifin), en þrátt fyrir það er enn að finna vísun til þess í lögum
um ársreikninga frá 17. janúar 2006 (nr. 3/2006) og kemur þar
skýrt fram í 118. gr. að ráðherra skuli skipa í það. Samkvæmt
119. gr. er hlutverk reikningsskilaráðs einnig óbreytt frá upp-
haflegri stofnun þess. í tíð sinni gaf reikningsskilaráð út fimm
leiðbeinandi reglur um reikningshaldslega meðferð og eru þær
taldar hér upp í röð: Regla 1 fjallar um grundvöll reikningsskila,
regla 2 um birgðir, regla 3 um sjóðstreymi, regla 4 um tekju-
skatt og regla 5 um reglulega og óreglulega rekstrarliði.
í 11. tl. 2. gr. í lögum um ársreikninga eru settar reikningsskila-
reglur skilgreindar á eftirfarandi hátt:
„reglur sem reikningsskilaráð gefur út, sbr. 119. gr., og alþjóð-
legir reikningsskilastaðlar, sbr. 12. tölul."
í 5. gr. sömu laga er vísað til þess að útbúa skuli ársreikninga (
samræmi við lögin, viðeigandi reglugerðir og settar reiknings-
skilareglur. Hvergi kemur þó fram í lögunum hvort taki hinu
fram, reglur reikningsskilaráðs eða alþjóðlegir reikningsskila-
staðlar. Alþjóðlegir reikningsskilastaðlar eru í sífelldri þróun og
hafa tekið einhverjum breytingum frá útgáfu reglna reiknings-
skilaráðs. Einmitt og ekki síst vegna þess þá greinir alþjóðlega
reikningsskilastaðla á við reglur reikningsskilaráðs um reikn-
ingshaldslega meðferð í einhverjum tilfellum. Dæmi um slíkt er
að samkvæmt reglu reikningsskilaráðs nr. 2 um birgðir er heim-
ilt að eignfæra gengismun í birgðum. Alþjóðlegur reiknings-
skilastaðall IAS 2 heimilar það hinsvegar ekki. Annað dæmi er
framsetning óreglulegra rekstrarliða, en samkvæmt reglu
reikningsskilaráðs nr. 5 skal sérgreina slíka liði í „kjallara"
rekstrarreiknings. Slík framsetning er hinsvegar ekki heimil
samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastaðli IAS 1. Þvíeróljóst
hvort regluverkið eigi að styðjast við þegar þau greinir á hvort
við annað. Það er Ijóst að nefndarmenn tóku mið af alþjóðleg-
um reikningsskilareglum við mótun þeirra reglna sem ráðið gaf
út, en sökum þess að lítil eða engin starfsemi hefur verið hjá
ráðinu síðan 2003, þá hefur enginn samræming átt sér stað við
breytingar á alþjóðlegum stöðlum.
Eins og fram kemur hér að ofan þá skipar ráðherra (iðnaðar- og
viðskiptaráðherra) reikningsskilaráð, en í því eiga að sitja fimm
sérfróðir menn. Félag löggiltra endurskoðanda, samstarfs-
nefnd háskólastigsins og Viðskiptaráð íslands tilnefna hvert
um sig einn nefndarmann, en ríkisendurskoðandi skipar þann
fjórða ásamt því að ráðherra skipar einn nefndarmann án til-
nefningar. Þá skipar ráðherra formann úr hópi nefndarmanna.
Reikningsskilaráð hefur ekki starfað svo vitað sé frá árinu 2003
þegar þáverandi formaður ráðsins sagði sig frá því. Ástæðu
fyrir uppsögn sinni sagði formaðurinn vera óánægju með
stefnu stjórnvalda varðandi endurskoðun á lögum um ársreikn-
inga. Formaðurinn taldi að athugasemdir reikningsskilaráðs þar
að lútandi hefðu verið hunsaðar í fjármálaráðuneytinu. Það er
bagalegt að allar götur frá því að reikningsskilaráð lagðist í
dvala hefur verið vísað til þess í lögum sem reglusetjandi aðila.
Það er einnig bagalegt með tilliti til vísunar úr lögum í reglur
ráðsins hversu óaðgengileg öll útgáfa ráðsins frá þeim tíma
sem það starfaði er í dag. Grundvöllur þess að hlutaðeigandi
aðilar geti farið að settum lögum og reglum er að viðkomandi
lög og reglur séu þeim aðgengilegar. Höfundar þessarar grein-
ar gátu ekki með góðu móti fundið nema tvær af reglum reikn-
ingsskilaráðs á netinu, og hvergi vísan til þess hvar sé hægt að
nálgast hinar. Nýlega voru birt á heimasíðu atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytis drög að frumvarpi að breytingum á
lögum um ársreikninga þar sem er að finna samskonar vísun til
reikningsskilaráðs og er að finna í núverandi lögum sem og að
í fjárlögum 2016 kemur fram að næstu tvö ár verði samtals 10
milljónum varið til reikningsskilaráðs. Það hlýtur því að vera
ætlun löggjafans að endurreisa reikningsskilaráð. Eðlilegt er þó
að velta fyrir sér hvort ekki væri réttara að leggja það niður og
vísa til alþjóðlegra reikningsskilastaðla þegar þær leiðbeiningar
sem fram koma í lögunum teljast ekki fullnægjandi. Eins og
horfir við í dag virðist það þó ekki vera ætlunin og þó að naumt
sé skammtað er Ijóst að þeim sem veljast til starfans bíður
ærið verkefni.
Signý Magnúsdóttir og Helgi Einar Karlsson
FLE blaðið janúar 2016 • 21