FLE blaðið - 01.01.2016, Blaðsíða 33

FLE blaðið - 01.01.2016, Blaðsíða 33
Breytingar á lögum um ársreikninga Unnar Friðrik Pálsson er endurskoðandi hjá KPMG Á vormánuðum 2014 hófst í atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytinu vinna við gerð frumvarps um breytingar á lögum nr. 3/2006 um ársreikninga. Tilurð þess er tvíþætt. Annars vegar er um að ræða innleiðingu á tilskipun Evrópusambandsins nr. 2013/34/ESB um ársreikninga félaga af tiltekinni gerð og kemur í stað tveggja eldri ársreikningatilskipana Evrópusambandsins. Tilskipunina þarf innleiða í íslensk lög á grundvelli EES samn- ingsins.Auk þess kemur fram í stefnu ríkisstjórnarinnar að hún hyggist beita sér fyrir endurskoðun á regluverki atvinnulífsins, meðal annars með einföldun og aukna skilvirkni að leiðarljósi jafnframt því að draga úr skrifræði og einfalda samskipti við opinbera aðila. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi nú í janúar. Reyndar stóð til að gera það á nýliðnu haustþingi en það gekk ekki eftir. Hér á eftir verður stiklað á stóru um efni frumvarpsins. Rétt er að taka fram að frumvarpið kann að taka breytingum í meðförum Alþingis. Markmið tilskipunar ESB í tilskipun ESB kemur fram að eitt megin markmiða hennar sé að draga úr stjórnsýslubyrði, einkum fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Tilskipuninni er ætlað að draga úr umsýslukostnaði litilla og meðalstórra félaga og bæta viðskiptaumhverfi þeirra. í afar stuttu máli má segja að orðin einföldun og skilvirkni fangi ágætlega kjarna tilskipunarinnar auk þess sem segir í inngangsmálsgrein hennar að áríðandi sé að samræma lög aðildarríkjanna um framsetningu og efni árlegra reikningsskila. Vinnuhópur Vegna innleiðingar tilskipunarinnar skipaði atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið vinnuhóp. Hann samanstóð af starfs- mönnum ráðuneytisins og fulltrúum FLE, ársreikningaskrár og fjármálaeftirlitsins. Síðar bættist fulltrúi félags bókhaldsstofa í hópinn. Alls urðu fundir vinnuhópsins tæplega 50. Auk undir- ritaðs voru fulltrúar FLE þeir Jón Arnar Baldurs og Herbert Baldursson. Óhætt er að segja að fundir vinnuhópsins hafi verið bæði gagnlegir og skemmtilegir, enda ekki við öðru að búast þegar saman koma allt að tíu einstaklingar úr ýmsum áttum með áhuga reikningsskilum og ársreikningum. Eins og gefur að skilja var skipst á skoðunum og ólík sjónarmið komu fram. Vinna starfshópsins fólst í fyrstu einkum í þvi að kryfja til mergjar fyrrgreinda tilskipun Evrópusambandsins. Sú vinna var tímafrek enda tilskipunin enginn léttlestur. í framhaldinu var svo tekið til við textasmíði, þ.e. tillögur starfshópsins um þær breytingar á núgildandi lögum sem nauðsynlegar eru vegna ákvæða tilskipunar ESB, auk annarra breytinga á lögunum sem hópurinn taldi að yrðu til bóta. Þannig má ýmislegt færa til betri vegar í lögunum, svo lengi sem breytingarnar fara ekki í bága við ákvæði tilskipunarinnar. Þá er í tilskipuninni að finna ýmis valkvæð ákvæði sem taka þurfti afstöðu til. Kynning á frumvarpinu og ábendingar frá haghöfum Á reikningsskiladegi FLE í september 2014 hélt reikningsskila- nefnd félagsins kynningu þar sem fjallað var um vinnu starfs- hópsins og nokkur veigamikil atriði tilskipunarinnar. Vinnan var þá skammt á veg komin. Ári síðar hélt Harpa Theodórsdóttir, sérfræðingur í ráðuneytinu og stjórnandi hópsins, fróðlegt og gott erindi um frumvarpsdrögin á reikningsskiladegi félagsins. Þá höfðu nýlega verið birt á heimasíðu ráðuneytisins drög að frumvarpi auk þess sem haldinn var opinn haghafafundur um miðjan september. Fundurinn var vel sóttur. Haghöfum var þar gefið færi á að leggja fram spurningar, auk þess sem óskað var eftir umsögnum frá þeim um frumvarpsdrögin sem þá voru enn í vinnslu. Bárust 11 umsagnir. Hrósuðu þeir sumir ráðu- neytinu sérstaklega fyrir það frumkvæði að halda opinn fund á þessu stigi málsins og gefa færi á að koma með ábendingar við frumvarpsdrögin. Farið var yfir þær ábendingar sem bárust ráðuneytinu og gerðar nokkrar breytingar á frumvarpsdrög- unum. Má þar helst nefna að fellt var út úr frumvarpinu ákvæði um bann við arðgreiðslum vegna matsbreytinga fjárfestingar- fasteigna sem færðar eru í rekstrarreikning. Stiklað á stóru í stuttri grein gefst ekki færi á að fjalla ítarlega um allar þær breytingar, smáar og stórar, sem verða gerðar á ársreikninga- lögum samkvæmt frumvarpinu. Eftirfarandi eru hins vegar nokkur atriði sem vert er að benda á. Ný stærðarflokkun félaga í tilskipuninni eru félög flokkuð eftir stærð í lítil félög, meðal- stór félög og stór félög. Það sem ákvarðar stærð félaga er stærð efnahagsreiknings, hrein velta og meðalfjöldi ársverka á reikningsári. Stærðarmörkin er að finna ( 3. gr. tilskipunar- innar. Fjárhæðir í tilskipuninni eru tilgreindar í evrum og er þeim löndum sem hafa annan lögeyri einungis heimilt að hnika viðmiðunarmörkunum um 5% að hámarki til að fá út viðmiðunarfjárhæðir (sléttar og fallegar). Flokkunin miðast við að félag fari ekki yfir (eða fari yfir) tvö af þremur viðmiðum. FLE blaðiðjanúar2016 • 31

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.