FLE blaðið - 01.01.2016, Blaðsíða 25

FLE blaðið - 01.01.2016, Blaðsíða 25
ingar hafa þó ekki verið jafn auðframkvæmanlegar og flestir höfðu talið. Stytting vinnslutíma hefur þó náð fram að ganga með því að breyta verkferlum, taka upp nýja tækni, endurmeta vinnubrögð og þannig hefur smám saman mótast skilningur á þvf að leggja meiri áherslu á þjónustuhlutverk ríkisskattstjóra í þessu samhengi. í flestum tilfellum hefur á síðustu árum tekist að halda afgreiðslutíma kæra innan þeirra marka sem skattyfir- völdum er ætlaður til slíkrar embættisfærslu. Upplýsingar úr framtölum vegna hagstjórnar - tilefni breytinga Víkur nú að þeim breytingum sem framundan eru og hvert sé tilefni þeirra. Upplýsingar úr skattframtölum bæði einstaklinga og lögaðila, eru að verða mikilvæg gögn í almennri hagstjórn. Skattframtöl veita marktækar upplýsingar um það hvernig ástandið er í samfélaginu og hver sé þróun eigna, tekna og gjalda. Upplýsingarnar sem framtölin hafa að geyma eru eftir- sóttar og þar til bærir aðilar bíða með óþreyju eftir þeim til að sinna lögbundnum skyldum sínum. Það verður að játast að í Ijósi þess hve efnahagslífið á íslandi hefur verið kvikt á undan- förnum árum er mun meira horft til þeirra upplýsinga sem fást úr skattframtölum heldur en áður var og jafnframt eru miklar óskir um að upplýsingar séu afhentar fljótt og í tilteknu formi en vitaskuld án þess að þær séu persónugreinanlegar. Þetta hefur kallað á að fram hefur farið athugun á því hvort unnt sé að flýta álagningu opinberra gjalda á einstaklinga og lögaðila. Hagstjórnin í landinu yrði án efa nákvæmari ef unnt væri að Ijúka álagningu framtala einstaklinga og lögaðila fyrr en verið hefur. Ýmis Ijón eru á þeim vegi og hefur þurft að fjalla ítarlega um það hvernig unnt sé að takast á við þau álitamál sem komið hafa upp. Til fróðleiks í þessu samhengi má einnig geta þess að auk þeirra sem eiga lagalegan rétt á upplýsingum úr fram- tölum eru ýmsir aðrir sem leita ár hvert til ríkisskattstjóra til að falast eftir upplýsingum og það jafnvel þótt lagaforsendur séu ekki til staðar. Ríkisskattstjóri hefur dregið þar skarpa línu og aðeins þeir aðilar sem lagaheimild hafa fá umbeðinn aðgang að upplýsingum. Upplýsingar úr skattframtölum einstaklinga hafa einnig verið sendar til ákveðinna stofnana, þar á meðal Tryggingastofnunar og Vinnumálastofnunar til að tryggja að ákvörðun hlutaðeig- andi stjórnvalda um úthlutun bóta sé í samræmi við gildandi lög þar að lútandi. Fyrir þessu liggja skýr lagafyrirmæli eða eftir atvikum samþykki hlutaðeigandi bótaþega þar sem tekjur annars staðar frá skipta máli í hverju einstöku tilfelli viðeigandi bótaþega. Fyrrnefndar stofnanir hafa á grundvelli skattupplýs- inga endurreiknað ákvarðaðar bætur og ýmist fært til lækkunar eða hækkunar fyrri ákvörðun sinni. Þetta hefur síðan haft þau áhrif að taka hefur þurft upp framtöl sömu einstaklinga sem hafa sætt endurreikningi bóta og hækka eða lækka ákvarð- aðar skattgreiðslur í samræmi við endanlega ákvörðun bóta. Fjöldi þeirra sem eiga í hlut hjá Tryggingastofnun ríkisins og hafa á undanförnum árum þurft að sæta endurreikningi hefur verið mikill, jafnvel allt að 70% bótaþega hefur átt þar hlut að máli. Ríkisskattstjóri hefur talið þetta fyrirkomulag afar óheppilegt og verið væri að raska framtalsskilum viðskipta- vina Tryggingastofnunar að óþörfu auk þess sem verið væri að leggja í mikla vinnu og ástæðulausan tvíverknað sem unnt væri að komast hjá. Ríkisskattstjóri hefur því í samstarfi við Tryggingastofnun unnið að því að færa stóran hluta þessara leiðréttu upplýsinga inn á framtöl áður en álagningu hefur verið lokið til að forðast að valda viðskiptavinum stofnananna óþæg- indum vegna þessa. Hugmyndir um flýtingu álagningar Oft hefur verið rætt um nauðsyn þess að færa álagningu einstaklinga framar svo hjá því sé komist að tilkynna um niðurstöðu álagningar á helsta sumarleyfistíma landsmanna. Ríkisskattstjóri hefur á undanförnum árum staðið fyrir mestu byltingu í opinberri stjórnsýslu hér á landi með því annars vegar að rafvæða framtalsskil og hins vegar að búa skattframtöl þannig úr garði að á þau sé búið að færa allar upplýsingar sem skattyfirvöldum eru send á grundvelli 92. gr. tekjuskattslaga. Með því að auka áritun upplýsinga inn á framtöl hefur tekist að ganga svo langt að helmingur framtala er tilbúinn fyrir fram- teljandann, með öllum launaupplýsingum, fasteignamati, öku- tækjaeign, innstæðum og skuldum auk ýmissa annarra upplýs- inga. Allur þessi breytti háttur og þær framfarir sem orðið hafa við vinnslu framtala, þar sem flestir framteljendur geta sóð bráðabirgðaútreikning álagningar um leið og framtali er skilað, hefur kallað á auknar umræður og vangaveltur hvort ekki sé unnt að Ijúka álagningu einstaklinga fyrr. Flýting álagningar er á hinn bóginn ýmsum erfiðleikum bundin þar sem álagning opinberra gjalda er samstarfsverkefni margra stofnana og ýmissa annarra aðila og er flókin tæknileg vinnsla. Þannig þarf að taka tillit til fjölda þátta hjá öllum sem að þessu verkefni koma. Eitt af því sem þyrfti að yfirvinna er að endur- skipuleggja skattlagningu bótaþega og taka tillit til endurreikn- ings bóta. Það verklag sem verið hefur við lýði varðandi bóta- þega Tryggingastofnunar hefur beinlínis hamlað því að unnt væri að flýta álagningunni. Ríkisskattstjóri og Tryggingastofnun hafa á síðustu misserum sammælst um breytta vinnuferla sem gera það að verkum að unnt verður að stemma bótagreiðslur af fyrr og þannig verði forsendur álagningar að mestu leyti réttar þegar rafrænt skattframtal er opnað, svo sem fyrr var lýst. Viðskiptavinir beggja stofnana munu eiga töluvert auðveldara með framtalsskil sín í framtíðinni ef þær breytingar sem ríkis- skattstjóri og Tryggingastofnun hafa í hyggju að hrinda í fram- kvæmd á næstu vikum, munu ganga eftir. Stendur til að færa endurreikning bóta framar og er að því stefnt að við opnun á skattframtölum einstaklinga myndi endurreikningi verða lokið og árituð skattframtöl taka mið af þeim breytingum sem gerðar verða á skattskilum vegna endanlegrar ákvörðunar bótafjár- hæða að endurreikningi loknum. Að þessu gefnu er Ijóst að unnt var að færa álagninguna framar og nú er niðurstaðan orðin sú að álagning opinberra gjalda á einstaklinga á árinu 2016 mun verða mánuði fyrr en verið hefur eða 30. júní 2016. Ríkisskattstjóri hefur kannað möguleika þess að álagning verði „eftir hendinni", þ.e. að álagning fari fram jöfnum höndum þegar skattframtölum er skilað en fari ekki fram á einum og sama tíma. Er sá háttur hafður á í nokkrum ríkjum Evrópu. FLE blaðið janúar 2016 • 23

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.