FLE blaðið - 01.01.2016, Blaðsíða 16
Líkt og skrifað hefur verið um áður má velta fyrir sér forsend-
um fyrir niðurstöðu í málum nr. 555/2012 og 529/2013 vegna
skuldsettra yfirtaka/samruna þar sem slík eignarhaldsfélög
sameinast rekstrarfélögum án þess að hægt sé að fara ítarlega
yfir þau mál í þessari stuttu grein. Engar lagalegar forsendur
eru fyrir hendi til þess að hafna samsköttun slíks eignarhalds-
félags með rekstrarfélagi í yfir 90% eigu slíks félags, sbr. 55.
gr., skv. framangreindum forsendum um frádráttarbærni vaxta-
gjalda. Að sama skapi væru vaxtagjöld slíks eignarhaldsfélags
frádráttarbær í áframhaldandi rekstri slíks eignarhaldsfélags.
Samkvæmt niðurstöðu Hæstaréttar falla þau réttindi að draga
slík vaxtagjöld frá tekjum eingöngu niður við samruna þess og
dótturfélags þess en ef félögin tvö halda sjálfstæði sínu þá eru
vaxtagjöldin að fullu frádráttarbær frá tekjum.
Almennt orðað byggir niðurstaða Hæstaréttar á þeim forsend-
um að skuldir eignarhaldsfélagsins tengist ekki rekstri dóttur-
félagsins. Forsendurnar virðast hins vegar ekki hafa verið þær
að skuldirnar hafi verið færðar til dótturfélagsins eingöngu í
skattalegum tilgangi enda hefði það skv. framansögðu ekki
staðist skoðun. Ef horft er á einfalda útgáfu af slíku máli er Ijóst
að tekjur eignarhaldsfélagsins, sem hefðu verið í formi arðs og
söluhagnaðar, verða ekki lengur fyrir hendi eftir samruna. Ef
horft er heildstætt á málið verður eftir sem áður ekki annað
ráðið en að höfnun á vaxtafrádrætti eftir samruna slíkra félaga
hafi meira með form að gera fremur en efni. Oft er erfitt að
átta sig á hvers vegna ráðist er í svo íþyngjandi aðgerðir gegn
skattgreiðendum jafnvel þótt lagatæknilega sé hægt að ná
fram neikvæðri niðurstöðu.
Með vísan til þess er að framan greinir verður útgangspunktur
vegna vaxtagjalda skv. núverandi reglum alltaf hvort hægt sé
að sýna fram á hinn rekstrarlega tilgang að baki láninu. Að
sama skapi má einnig ráða af fordæmum og skilaboðum skatt-
yfirvalda að þegar á reynir munu markatilvik í flestum tilvikum
túlkuð ríkinu (vil á kostnað skattgreiðenda.
Páll Jóhannesson
Frá hádegisfundi.
Fleikningskilanefnd er önnum kafin.
Endurskoðunardagur 2015.
Gleðistund.
14 • FLE blaðið janúar 2016