FLE blaðið - 01.01.2016, Blaðsíða 32
og þeirra afstaða til mikilvægra aðgerða sem er að finna í ISA
stöðlunum en ekki í SASE, t.d. varðandi birgðatalningar (ISA
501) og staðfestingarbréf stjórnenda (ISA 580).
Ein af samtökum endurskoðenda í Englandi og Wales ICEAW,
sem hafa um 144.000 félagsmenn sendi langt erindi og jafn-
framt er fjallað um staðalinn (tímariti félagsins í nóvember
2015 og jafnframt á heimasíðu félagsins. http://economia.
icaew.com/business/november-2015/audit-standards-for-smes
Önnur endurskoðendasamtök í Skotlandi, Nýja-Sjálandi,
Ástralíu og Hollandi sendu jafnframt inn erindi og eru almennt
jákvæð gagnvart staðlinum en leggja til ýmsar breytingar.
SASE-2. útgáfa?
Ljóst er að ekki verður staðallinn samþykktur í núverandi mynd.
Athugsemdir og ábendingar kalla á ýmsar lagfæringar sem
bregðast þarf við. Á næstu misserum verður unnið að því að
hafa samráð við ýmis samtök endurskoðenda, m.a. IAASB,
ICAEW, um hvernig breytingar þurfi að gera á staðlinum svo
hægt sé að beita honum við endurskoðun lítilla eininga.
Ennþá stendur jafnframt eftir að grundvallarspurningunni um
hvort skuli hafa tvö sett af endurskoðunarstöðlum er ósvarað.
Tilraun NRF sýnir að mínu mati að hægt er að einfalda staðla-
verkið töluvert til að mæta þörfum (endurskoðun lítilla eininga.
En svo er spurningin hvort það sé það sem endurskoðendur
vilja.
Jón Rafn Ragnarsson
Frá haustráðstefnu.
Gaman á haustráðstefnu.
Hlustað afathygli.
30 • FLE blaðið janúar 2016