Ráðunautafundur - 13.02.1978, Page 5
199
Þaö verður aö gera kröfu til þess , að þegar stofnað er til
framleiðslu af þessu tagi, þá verði hakvæmnissjónarmið algilt
látin ráða. Her er um að ræða nýjar búgreinar, sem búið er að
þrautrannsaka erlendis og margvísleg tækni og leiðbeininga-
þjónusta stendur til boða. Nú hefur hins vegar verið mörkuð
eins konar framleiðslustefna fyrir þennan búskap í útlánareglum
búnaðarsjóðanna, og þegar ég sá þessar reglur á sínum tíma,komst
ég að því, að bústærðirnar, sem hér voru valdar sem lánsverðar
eða lánhæfar voru þær alóhagkvæmustu, sem unnt var að benda á
samkvæmt margra landa rannsóknum.
Svona stefnumörkun er í mesta máta óþjóðleg og hlýtur fyrr
en seinna að mæta kröftugri andspyrnu neytenda, sérstaklega ef
hún kynni að vera ráðandi á fleiri sviðum matvælaframleiðslunnar.
Það eru líka margir þeirrar skoðunar, að bezt sé að dreifa
þessum fénaði um sveitir sem eins konar „aukabúgreinum", senni-
lega þá ætlað að hagnýta „frístundir", sem kunna að falla búaliði
í skaut á tímanum frá rismálum til miðnættis eða til að nýta
vinnuþol kverma og barna. En sé þetta raunverulega ígrunduð og
mörkuð stefna, þá er ráðlegast fyrir okkur að taka upp fræði og
leiðbeiningastörf þeirra manna, sem nágrannaþjóðir okkar voru
að bera til hinstu hvíldar á árunum 1950-1970. Nei, slík vinnu-
brögð eru ekki samboðin framsæknum landbúnaði hjá framsækinni
þjóð.
Með hliðsjón af því, sem hagkvæmt má teljast og framsækið,
vil ég hér á eftir benda á, hversu margar búseiningar af hverju
tagi væru hagkvæmnar í þessu landi og hversu mikinn mannafla
framleiðslan þarfnast miðað við markaðinn í dag:
a. Bezt rekna svínabú landsins hefur 250 gyltur, framleiðir
um 250 tonn af svínakjöti árlega og við það starfa 5
menn við hirðingu, aðdrætti, slátrun og flutninga á
sölustað. Sé miðað við 1000 tonna framleiðslu,
þá þarfnast landið ca. 4 slíkra svínabúa með um 20 starfsmenn.
b. ,Bezt rekna eggjaframleiðslubú landsins hefur um
35 þúsund varphænur. Hæfilegur starfsmannafjöldi
á slíku búi væri 4 menn. Slíkt bú á með góðu móti
að geta framleitt um 400 tonn af eggjum.
Landið þarfnast þá ca. 6 slíkra hænsnabúa meó um 24 starfsmenn.