Ráðunautafundur - 13.02.1978, Page 38
232
Þótt æðarvörp hafi verið nytjuð hér á landi frá upphafi
byggðar, höfum við mjög fátæklegar athuganir undir höndum um
þá búgrein, eldri varpbændur hafa þar tekið dýrmæta reynslu
með yfir landamærin. A síðari áratugum hefur æðarrækt yfirleitt
ekki verið sómi sýndur sem skyldi, svo minni þekking hefur
flutzt á því sviði milli ættliða en áður var. Ég man sem ungur
drengur, að afi minn var reiður við Jónsmessu varp , á þeim
tíma var eggjataka í æðarvarpi heima. Afi hlúði að dúnkollum
og tók fá egg úr góðum hreiðrum, en gekk nærri eggjum í Jóns-
messuvarpi, taldi þær kollur vanhaldapening og ekki rétt að
ala upp undan þeim. Úg spurði aldrei út £ á hvaöa forsendu
hann gerði svo. Einhver sagði mér, að það væri vegna þess,
að þeir ungar myndu misfarast í haustbrimum. En eflaust hafa
getað legið til þess fleiri rætur, t.d. að trú manna er, að
Jónsmessuvarpið sé fyrst og fremst hjá kollum, sem- hafa misst
undan sér unga tilorðna á venjulegum varptíma um vorið, og afa
hafi fundizt það lélegar mæður, og ástæðulaust að setja á til
lífs undan þeim.
Þegar kollan hefur full dúnað, er rétt að taka fyrsta
tekjudúninn, hreiðrarjómann. Það fer þó mjög eftir gerð
hreiðurs og eggjafjölda, hversu m'ikinn dún má taka, og aldrei
skyldi ganga nær en svo, að 2/3 hlutar dúnsins sé eftir skilinn
hjá eggjunum, nema að annað skjólefni sé látið £ staðinn. Eg
hefi sjálfur orðið fyrir þv£ óhappi að ganga of nærri dún £
köldu og úrfellasömu vori, og leiddi það af sér, að mörg hreið-
ur unguðust ekki út, en vegna fjarveru hafði ég ekki tök á að
stunda siðaða varpmenningu.
Sumir hafa þann hátt á að taka engan verulegan dún
fyrr en skriðið er út úr hreiðrum, taka áður aðeins þann dún,
sem liggur viö foki. Eflaust er það bezt fyrir kolluna og
egginfnað jafnaði er sá dúnn, er b£ður þess, að kollan leiði
út, ekki eins góð vara. Varast ber að ganga varp £ rigningu
eða þegar blautt er á grasi, en nota hverja færa stund, eftir
að fer að skr£ða út, til þess að safna dún úr varpi.
Strax og heim er komið verður að breiða dúninn til
þurrkunar og hrista úr honum mestu óhreinindin. Dúnn má