Svava - 01.10.1903, Síða 42
138
gaf til kynna, að hanu væri læknir úr sjóflotaliðinu.
Þegar Sir William gerði hann og Alfred kunnuga,
nefndi hann þenna aðkomna mann dr. Eobert Holland.
‘Sögðuð þér, Harrold, Sir William V spurði doktor-
inn og starði í augu hins unga manns.
Læknirinn þreif í herforingjanu og dró hann af-
síðis. Nokkura stund voru þeir á eintali. Svo settist
Sir William við borðið en dr. Holland gekk um gólf
í salnum og sýndist vera mjög hugsandi og í óróu
ekapi.
‘Hvað er það som valdið hefir yður slíkrar æsingar,
dr. Holland'i’ spurði Sir William og horfði undrandi á
læknirinn,
‘Það er ekki neitt’, svarað dr. Holland ; settis í legu.
bekk, tók bók sér í hönd og virtist fara að lesa í henni,
en sneri henni þó öfugt fyrir sér.
Sir William virti hann þegjandi fyrir sér.
‘Doktor’, tók haun til orða eftir nokkura þögn,
‘vjljið þér afsaka mig um fáar niimítur V
‘Eg heíi ekki lyfjaskrínu mína hér’.
‘Eg spurði, hvort þér vilduð afsaka mig um fáein
augnablik’.
‘Afsaka — hvað? Hafið þér aðhafst nokkuð rangtí’