Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2016, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2016, Page 12
12 Fréttir Vikublað 8.–10. mars 2016 Landsins mesta úrval af kókósvörum með heilsuna þína að leiðarljósi www.hberg.is / hberg@hberg.is Fæst í öllum helstu matvöruverslunum Stórstjörnur og skriðdrekar n Stórmyndin Fast 8 að hluta til tekin upp á Íslandi U ndirbúningur fyrir tökur á stórmyndinni Fast 8 stendur nú sem hæst á Íslandi. Fram- leiðslufyrirtækið Truenorth á Íslandi vinnur að undirbún- ingi fyrir myndina. Þetta er risavaxið verkefni og munu ríflega tvö hundruð manns koma hingað til lands á vegum Hollywood-risans Universal Pictures. Samkvæmt heimildum DV munu ríf- lega 200 Íslendingar tengjast verkefn- inu. Tökur munu fara fram á a.m.k. tveimur stöðum hér á landi. Staðfest hefur verið að Akranes verður vett- vangur myndarinnar að hluta og einnig er mikill undirbúningur í gangi á Mý- vatni vegna Fast 8, sem eins og nafnið gefur til kynna er áttunda myndin í langlokunni The Fast and the Furious, einnig þekkt sem Fast & Furious. Tugir bíla og tækja verða fluttir hingað til lands vegna verkefnisins. Í gær mátti sjá þrjá stóra flutningabíla, hlaðna hernaðartækjum og tólum, keyra í gegnum Reykjavík og halda vestur. Þrír skriðdrekar voru á einum bílnum og herbílar á öðrum. Ljóst er að um alvöru spennumynd er að ræða og undirbúningur er gríðarlegur. Fjöldi stórleikara fer með hlutverk í myndinni. Má þar nefna Vin Diesel, Jason Statham, Dwayne Johnson (The Rock). Þá er á kreiki orðrómur um að stórleikkonan Charlize Theron muni leika glæpakvendi í myndinni. Eva Mendes er einnig orðuð við Fast 8. F. Gary Gray leikstýrir en hann sá um leikstjórn í myndinni Straight Outta Compton og Law Abiding Citizen svo einhverjar séu nefndar. Mikil leynd hvílir yfir verkefninu eins og jafnan er þegar um er að ræða verkefni á vegum draumaverksmiðj- unnar í Hollywood. Samkvæmt heim- ildum DV eru tökur ekki hafnar en stutt er í að allt verði tilbúið. Frumsýn- ingardagur myndarinnar hefur verið tilkynntur opinberlega. Hann er 14. apríl á næsta ári. Samkvæmt heimildum DV er gert ráð fyrir að tökum hér á landi ljúki í apríl. n Eggert Skúlason eggert@dv.is Til Íslands? Charlize Theron stórstjarna er orðuð við Fast 8. Aðalhlutverkið Vin Diesel er ein aðal- stjarnan sem kemur til Íslands. Skriðdrekar í Reykjavík Lest flutningabíla ók með skriðdreka og önnur hertæki í gegnum Reykjavík í gær. Mynd ÞoRMAR VigniR gunnARSSon Risaverkefni Flutningabílarnir sem óku í gegnum borgina voru á erlendum númerum. Ekk- ert er til sparað. Þessir voru að fara á Akranes eða norður að Mývatni. Mynd ÞoRMAR VigniR gunnARSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.