Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2016, Side 15
Vikublað 8.–10. mars 2016
PLUSMINUS OPTIC
Smáralind
www.plusminus. is
20% afsláttur
Hönnun mánaðarins:
BELLINGER
Betra grænmeti
Betra kjöt
Betri ávextir
Fyrst og
fremst...
þjónusta
Fréttir Erlent 15
„Ég hafði tapað allri von“
yfir hlutina með Joseph. Frásögnum
þeirra af deginum þegar vinnumaður-
inn dó bar saman. Gash kannaði mál-
ið og skólastjórinn sagði að bræðurnir
hefðu hvergi komið nálægt dauða
mannsins. Þeir hefðu verið læstir inni
í skólanum eins og hin börnin. „Það
var engin spurning í huga mínum,
þessir drengir voru saklausir,“ segir
Gash.
Gash og Henry urðu miklir mátar.
Gash fór aftur heim til Bandaríkjanna
og þeir héldu sambandi. Í mars 2010
þegar mál piltanna í unglingafang-
elsinu fóru fyrir dóm voru bræðurnir
sýknaðir af ákærunni um morðið á
vinnumanninum. Faðir þeirra var
líka sýknaður. En Henry þurfti að bíða
dóms vegna dauða Innocents.
Dæmd saman
Þegar það fór loksins fyrir dóm voru
Henry og forstöðukonan dæmd
saman. Lögmaður þeirra sagðist ætla
að verja hana fyrst og fremst þar sem
Henry gæti aðeins fengið þriggja
ára dóm en hún lífstíðardóm. Vitni
þáðu mútur til að koma sökinni yfir á
Henry. Þau voru bæði fundin sek. Þá
ákvað Gash að snúa aftur til Úganda,
hann vissi að það væri möguleiki á að
dómarinn breytti stefnu sinni og tæki
þá ákvörðun að dæma Henry sem
fullorðinn einstakling. Þá yrði hann
einnig dæmdur í lífstíðarfangelsi.
„Ég vissi ekki alveg hvað ég ætlaði að
gera, en ég vissi að einhver sem mér
þótti virkilega vænt um var í miklum
vandræðum,“ segir Gash. Henry þurfti
að undirgangast læknisskoðanir til að
ákvarða aldur hans og læknarnir vildu
mútufé. Henry og fjölskylda hans
höfðu ekki efni á slíku. Á endanum fór
það svo að lögreglulæknirinn staðfesti
að Henry væri ekki orðinn átján ára.
Þú ert frjáls
Henry var dæmdur í skilorðsbund-
ið fangelsi, en þar sem hann hafði
þegar lokið tveggja ára afplánun
var honum sleppt án þess að þurfa
að sæta skilorði. Hann þakkar vini
sínum, Jim Gash, aðstoðina. Hann
fór aftur í skóla, en Gash var ósáttur
við að Henry væri á sakaskrá. Hann
vissi að þetta hefði áhrif á framtíð
hans og ákvað að áfrýja. Það tók tvö
ár, en Henry var loksins sýknaður á
grundvelli þess að hann hefði ekki
fengið réttlát réttar höld. Tölvupóst-
ur þess efnis barst í júní í fyrra, sex
árum eftir að hann var fyrst hand-
tekinn. Málið yrði ekki tekið upp
aftur. „Þú ert frjáls. Nafn þitt hefur
verið hreinsað,“ sagði Gash titrandi
þegar hann hringdi í Henry á Skype
til að segja honum fréttirnar. Henry
er nú í háskólanámi við háskól-
ann í Kampala þar sem hann nem-
ur læknis fræði og Gash skrifaði bók
um málið og Henry sem hann kall-
ar Divine Collision. Þeir halda enn
sambandi. n
n Bandarískur lögmaður bjargaði Tumusiime Henry n Saklaus í fangelsi n Neyddur til að beita ofbeldi
Félagar
Jim Gash og
Tumusiime
Henry náðu
vel saman.
MynD SkáSkot BBC „Það var engin
spurning í huga
mínum, þessir drengir
voru saklausir.